Búnaðarrit - 01.01.1895, Page 45
Um ábyrgð á húsum og nautfje
í hinu íslenzka þjóðveldi.
Bptir Boga Th. Melsteð.
Það er margt í lögum vorum frá þeim tímum, er
ísland var þjóðveldi, sem bæði er gagn og gaman að
athuga, þótt þau sje nú úr gildi gengin og einungis
eign sögunnar. Ef vjer íslendingar hefðum stundað þau
meir en vjer höfum gert, má ætla að það hefði borið
ýmsa góða ávexti. Þó er það víst, að fornöld vora fá-
um vjer aldrci vakið upp aptur nje endurlifað, og eigi
dugar að einblína á hana, er vjer reynum að endurbæta
ýmislegt hjá oss, því ávalt verður fyrst og frcmst að
athuga alt eins og það er nú, því á nútíðinni verða
aliar endurbætur að hvíla; en hins vegar má læra ýmis-
legt af fornöld vorri, og þaðan má fá marga góða bend-
ingu. Jafnframt og menn reyna að endurbæta ýmislegt,
reyna að byggja og tryggja framtiðina sem bezt á nú-
tíðinni, þá verða menn að lcita ráða hjá fortiðinni, með
því að athuga reynzlu manna, og nota þær leiðbeiningar,
sem sagan gefur.
Enginn skilji þó upphaf þessa máls svo, að það sjc
ætlun mín, að oss sje meiri nauðsyn á að stunda þjóð-
veldislög vor en þau lög, sem nú eru í gildi. Sú lög-