Búnaðarrit - 01.01.1895, Page 79
75
sogja um Bárð Hallfreðarson, og enda fleiri af kaup-
mönnum þessum, en þó eru mest líkindi til þess að
þeir liafi verið norrænir.
1242. Jón lindiás var stýrimaður á skipi þvi,
sem Pórður kakali kom út á; skipið var norrænt og
Austmenn á því.
1228—1252. Eyvindur brattur Eyvindarson skalla,
Austmaður, var að Sauðafelli, er Yatnsflrðingar rændu
þar (13. janúar 1229). Síðar er lians opt getið á ís-
landi, en seinast er hans getið 1252; rjeðst hann þá
til vistar í Reykjaholt um kaustið, og Sunnefa húsfrej’ja
hans. Hann var þá gamall maður og óskygn. Hanu
var kirðmaður Hákonar konungs.
1244. Eirílcur skarði, norrænn maður, átti heima
í Sogni, og fór kaupferðir til íslands.
1245. Gunnar brattur kom á kaupskipi til Eyja-
fjarðar.
1246—1253. Eysteinn hvíti, Austmaður, var í Haugs-
nesbardaga 1246. Eysteinn var góður bóndi í Þránd-
heimi, og voru margir íslendingar í veturvist hjá hon-
um. 1252 kom hann út á Gásum og margir íslenzkir
farþegar með honum. Jórunn kona hans var þá með
honum. Sumarið eptir varð hann síðbúinn, og týndist
20. septbr. 1253 við Flateyjardal og á 6. tigi manna
með konum.
1251. Kolbeinn svarti og Skoggi hvíti sigldu frá
Noregi og liöfðu langa útivist. Þeir týndust 25. septbr.
1251 fyrir Minnþakseyri.
1252. Klement nokkur og Öndóttur Hjaltur (o:
Hjaltlendingui') stýrðu skipi, er kom út i Dýrafirði.
Öndóttur var hirðmaður, og virðist svo sem hann hafl
áður komið út til íslands.