Búnaðarrit - 01.01.1895, Page 185
181
og Markarfljóts á árunum 1830—1840; fyrir því bað cg
skólapilt Guðmund Guðmundsson frá Hrólfstaðahelli á
Landi að halda spurnum fyrir um þetta efni; skýrði þá
Sigurður Ólafsson á Húsagarði á Landi honum svo frá,
að Pórður Árnason, er síðast var prestur á Mosfelli
(f 1862) haíi fundið upp orfhólkana, þá er hann var í
Skarði á Landi áður en liann tók prestsvígslu; Sigurður
er uú kominn yíir sjötugt; heíir hann alla æii verið í
Húsagarði, ogbjó hann þar leugi; segir Guðmundur svo
frá, að hann sje mjög áreiðanlegur maður, minnugur og
fróður um margt.
Séra Pórður Árnason (f. 1803) var sonur Árna
prests Illugasonar á Hofi á Skagaströnd, bróðir Jóns
Árnasonar bókavarðar; hann varð prestur að Klaustur-
hólum 1836; síðar flutti hann að Vogsósum og síðast
að Mosfelli í Mosfellssveit. Eitt af börnum hans var
Jón prófastur á Auðkúlu; hann átti heima í Skarði á
Landi í 8 ár, frá 1828—1836, og á þeim árum hafa
orfhólkarnir þá verið fundnir upp; líklegast þykir mjer
að það hafi þó eigi verið fyr en seint á þeim árum,
því gera má ráð fyrir, að þeir hafi fengið fljóta út-
breiðslu í austursveitum, eins og annarsstaðar, jafnótt
og þeir urðu kunnir, en eigi hefi eg gctað haft spurnir
af þcim fyr cn um það leyti sem séra Þórður var kom-
inn að Klausturhólum. Um 1850 voru orfhólkarnir orðnir
kunnir og alment notaðir um alt land; einna seinast
munu þeir hafa orðið kunnir í Austur-Skaptafellssýslu.
Sjera Þorsteinn Einarsson, er prestur varð að Kálfafells-
stað 1848, kendi mönnum fyrst að nota þá í Suðursveit.
Eirikur Briem.