Búnaðarrit - 01.01.1923, Síða 106
90
B'ÚNAÐaRRIT
Þeir verja ekki að fullu, nema girt aje ofan á garðana
með 2—3 strengjum. Sjeu skurðirnir vel gerðir og
d/tipir, verða þeir eins góð vörn gaiðlausir, ef streng-
irnir eru settir tæpt á sjilfan skuiðbakkann.
Yið að dreifa ruðningnum er hestareka ómissandi
áhald; oft er ráðiegt að plægja ruðning fyist, ef hann
er gamall og siginn.
Lokræsi. Þó altaf sje hægt að ræsa land að fullu, með
opnum skurðum, fylgja því ýmsir anmnarkar.
Hjer gætir þessara annmarka mest:
1. Að það er dýrt að grafa skurðina; rúmmál moldar-
innar, sem grafa þarf og flytja burt, er mikið.
2. Opnir skurðir þurfa allmikið viðhald.
3. Að skuiðirnir, ef þeir eru maigir og liggja náið, eru
allmikili tálmi við vinnu og flutning (uppskeru og
áburðar).
Það verður því að jafnaði happadrýgst, að nota lok-
ræsi að einhveiju leyti til framræ*lu, ef þeim veiður
við komið. — Hjer á landi koma 2 gerðir lokiæsa mest
til greina, grjótiæsi og hnausræsi.
Qrjötrœsi eru líka kölluð malarræsi, sem er rangt,
því malarræsi eru að eins ein tegund gijótræsa, og það
sú sem lökust er. Gijótræsi eiga að vera 1,20 m. á
dýpt, breiddin að ofan 50 cm. og í botninn 30--40 cm.
Hallinn má helst ekki vera minni en 1 : 300, og aldrei
meiri ofan til en neðan til í ræsinu. Moldin úr ræsiuu
á að leggjast á annan bakkann, grasrótin ofan af ræs-
inu á hinn. Grjót til ræsageiðarinnar er lagt á þann
bakkann, sem grasrótin liggur á, þegar það er flutt að.
Til ræsageiðar er best klofagijót og biotasteinar, óreglu-
lega lagaðir. G jótið má setja á mismunandi hátt, fer
það mest eftir stæið þess og lögun. Sjeu hliðar læsisins
þjettar fyrir, niður við botninn á læsinu, má setja það