Búnaðarrit - 01.01.1923, Page 129
BÚNAÐARRIT
113
hefir verið veitt til úr sjóöum þeim eða stofnunum, sem
um getur í 2. og 3. gr. Ennfremur hefir það eftirlit
með því, að verk þessi sjeu unnin á þann hátt, sem í
skilyrðum var haft, er lán eða styrkur var veitt; að
svo miklu leyti sem verkið er óframkvæmt, eða eftirlit
þetta eigi falið öðrum sjerstaklega.
5. gr.
Störf þau, sem Búnaðarfjelagi íslands eru ætluð í
lögum þessum, framkvæmir ýmist stjórn þess, fram-
kvæmdarstjóri eða ráðunautar; alt ettir því, sem lög
fjelagsins og reglur mæla fyrir.
6. gr.
Búnaðarfjelag íslands hefir heimild til, er því þykir
þörf á, að velja sjer 1 eða 2 trúnaðarmenn í hreppi
hverjum, til þess að hafa, fyrir fjelagsins hönd, umsjón
og eftirlit með ræktunarfyrirtækjum þeim, sem undir
það falla í þeim hreppi eða hreppshluta. Fjelagið fær
mönnum þessum ítarlegt erindisbrjef, en borgun fyrir
starf sitt fá þeir hjá þeim mönnum, er þeir líta eftir
hjá, samkvæmt reglum, sem settar verða í erindisbrjef-
inu. Ef ágreiningur veröur um borgun þessa, sker Bún-
aðarfjelag íslands úr.
II. kafli.
Ilm túnræbt og garðyrkjn.
7. gr.
Atvinnumálaráðuneytið gefur út reglur eítir tillögum
Búnaðarfjelags íslands, um hversu áburðarhús og safn-
þrær skuli gerð. Nú hefir sá, er gera lætur áburðarhús
eða safnþró, fylgt reglum þessum í öllu, og Búnaðar-
tjelag íslands telur hann hafa þörf fyrir húsið eða þróna,
og má þá veita þeim, er verkið ljet framkvæma, styrk
8