Dvöl - 01.04.1938, Side 7

Dvöl - 01.04.1938, Side 7
D V 0 L 85 sætinu, að þarna var tengdafað- ir hans, presturinn í Suður-Bölle kominn, og gekk glaður í bragði niður úr dyrunum til að taka á móti honum. Sá gamli liafði ekið til bæjar- ins á laugardegi, slíkt hefði séra Jcsper aldrei til hugar komið, en velkominn skyldi liann sannarlega vcra. Hann vildi ekki fara niður úr vagninum, en loks þegar búið var að fá hann inn í stofuna, sat hann rólegur stundarkorn, með lírítarpípuna í munninum og ölglas fyrir framan sig og rabbaði nota- lega við tengdasoninn. Erindi hans var nú eiginlega bara, að spyrja embættisbróður senn, hvort hann gæti gefið nokkr- ar upplýsingar viðvíkjandi þess- um ósvífna innbrotsþjófi, sem bú- inn var að gera vart við sig í hér- aðinu mánuðum saman og stal úr matarbúrunum á bæjunum. Ein- hvern enda varð þessi óhæfa að taka, o g Suður-Bölle-prcstinum fannst liann vera skyldugur að taka málið í sínar hendur, ekki sízt fyrir það, að nýlega hafði þjóf- urinn verið svo djarfur, að hcim- sækja að nóttu til matarbúrið á sjálfu prestssetrinu og næstum því tæma það. Bessvegna átti nú að safna sönnunargögnum, og síðan að klófcsta dónann, hver svo sem hann væri. í þeim tilgangi ók presturinn nú manna á milli og tók skýrslu af þeim, scm óbóta- maðurinn hafði komið við hjá. Séra Jesper hafði að vísu oft heyrt talað um þetta hneyksli, en ekki gat liann fyrir sitt leyti gef- ið neinar upplýsingar, sem stutt gætu að því, að málið yrðijjósara, og síðan fóru þeir að tala um ým- islegt annað, sem prestum er hug- stæðara, þegar þeir finnast ogsem þeir geta eytt miklum tíma í að spjalla um, svo sem guðsríki, korn- verð, offur og tíundir. En tengdafaðirinn átti annríkt og vildi fara af stað. Birgitta kom inn og færði honum aftur í öl- könnuna. Hún var flóttaleg í fram- komu, það var eins og hún hnipr- aði sig saman fyrir augnaráði hans og skauzt út úr stofunni jafn- skjótt og hún gat. En varla hafði hún lokað dyrunum, þegar sá gamli fór að depla augunum í ákafa, sneri sér að tengdasynin- um og óskaði honum til hamingju, því að það væri auðséð, að Bir- gitta væri á leiðinni til að blcssa heimili hans. En sá gamli þagnaði, dálítið hissa á þvíj hvernig tengdasonur- urinn tók hamingjuóskinni. Séra Jesper glcnnti fyrst upp augun Og það var eins og þau ætluðu út úr augnatóftunum af skclfingu, síðan varð liann blóðrauður í framan, riðaði á stólnum og virtist ætla að hníga niður. — Sá gamli þekkti tengdason sinn að því, að vera að sumu lcyti mjög einurö- arlausan, eins og ekki eróvanalegt hjá sterkum mönnum, og hélt að það væri ástæðan til þess, hvern- ig honum varð við. Hann brosti

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/619

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.