Dvöl - 01.04.1938, Blaðsíða 54
132
D V 0 L
Vorið
Efiir Heðin Brú
Heðin Brú heitir réttu nafni Hans
Jakob Jakobsen. Hann er af bændaætt-
um kominn, fæddur og uppalinn í Skála-
vík í Sandoy. Hann hvarf ungur að
heiman til búnaðamáms í Danmörku og
að loknu námi við Jandbúnaðarháskól-
ann í Kaupmannahöfn var hann skipað-
ur búnaðarmálastjóri i Færeyjum. Því
starfi hefir hann gegnt nú um nokkurra
ára skeið.
Heðin Brú er enn á unga aldri, um
þrítugt. Hann er þó hiklaust talinn
fremsta söguskáld Færeyinga. Eftir
hann hafa þegar komið út þrjár bækur,
tvær stórar skáldsögur, Lognbrá 1930
og Fastatökur 1935, og eitt smásagna-
safn, Fjaliaslcuggin 1936; úr þvi er
þýdd saga sú, er hér birtist. Heðin Brú
hefir einnig ritað talsvert í færeyslta
bókmenntatímaritið Varðin og um þcss-
ar mundir er að koma út í því all-löng
framhaldssaga eftir hann, er nefnist
Feðgar á ferð, og sennilega kemur út
sérprentuö áður en langt um líður.
Heðin Brú sækir yrkisefni sín tíðast
í daglega lífið. Frásögn hans er látlaus
og einföld, en þó með frábærum snilld-
arbrag. Honum lætur mæta vel að skrifa
um vorið og æsltulýðinn; þetta tvennt
er oft saman slungið í sögum hans. Svo
er og í þeirri sögu, er hér birtist.
Viö spjöllum um bernskudag-
ana — —.
. . . Manstu ekki, þegar vorið
yar í 'aðsigí? Jafnskjótt og dagana
tók að lengja, byrjuðum við að
þráspyrja fullorðna fólkið um vor-
komuna. Dag einn leiddi pabbi
okkur út að glugganum.
„Sjáið þið“, mælti hann og
benti yfir á Bláfjall. „Sjáið þið
stóra steininn, sem ber við him-
ininn þarna uppi?“
Iiann tók okkur sitt á hvorn
handlegg og lyfíi okkur upp.
„Sjáið þið nú bæði?“
„Já, ég sé hann vel“. „Sko,
sko, ég sé hann líka“.
„Pessi steinn heitir Miðdegis-
steinn. Þegar sólin er tekin að