Valsblaðið - 01.05.1999, Page 41

Valsblaðið - 01.05.1999, Page 41
Eftír Þorgním Þnáinsson A að mála Hlíðarenda rauðan? Verflur félagsmiflstöfl afl veruleika hjá Val? Eru Valsmenn velkomnir afl Hlíðarenda? Hvað iiarf til að ná árangri í íþróttum? Rætt við Elísabetu Gunnarsdtíttur yfirþjáifara yngri tlnkka kvenua og þjálfara 3. flokks og unnusta hennar, Gylfa Sigunðsson, þjálfara 5. flokks drengja. Öllum, serrí fylgjast með kvennaknatt- spymu á Islandi, ber saman um að stelp- umar í Val hafi verið í góðum höndum síðastliðin ár. Þær hendur tilheyra að langmestu leyti Elísabetu Gunnarsdóttur en aðrir þjálfarar hafa þó vissulega lagt hönd á plóginn. Hún hefur alið upp hverja „gulldömuna“ á fætur annarri og kunnugir segja að þeir gullmolar, sem munu án efa slá í gegn í meistaraflokki í framtíðinni, séu enn að mótast í höndum hennar. Beta, eins og hún er yfirleitt kölluð, þjálfaði 3., 4., 5. og 6. flokk síð- astliðið sumar ásamt unnusta sínum, Gylfa Sigurðssyni, og það kemur engum á óvart að Beta skuli vera orðin yfirþjálf- ari yngri flokka kvenna. Beta er 23 ára að aldri og hóf að æfa með 3. flokki Vals fyrir nákvæmlega tíu árum en þá voru ekki til flokkar fyrir enn yngri iðkendur. Beta segir að ofþjálfun hafi gert það að verkum að hún hafi ver- ið meira eða minna meidd síðustu fjögur ár en hún keppti í frjálsíþróttum og á skíðum, stundaði líkamsrækt á fullu auk þess að spila fótbolta. Hvíldarskortur hefur því að öllum líkindum bundið enda á knattspyrnuferil hennar en hún náði þó heilu tímabili með meistaraflokki sumar- ið 1998. „Það er fyrst núna sem ég er farin að slaka á af því að ég get ekki hreyft mig,“ segir Beta en hún útskrifað- ist frá Iþróttakennaraháskólanum á Laugarvatni síðastliðið vor. Gylfi Sigurðsson er borinn og bam- fæddur Homfirðingur og lék með Sindra í gegnum alla yngri flokkana auk þess að Iþróttaparíð að Hlíðarenda, Elísabet Gunnarsdóttir og Gylfi Sigurðsson. keppa í blaki og körfubolta. Hann lauk námi frá Iþróttakennaraháskólanum ári á undan Betu og stundaði nám í Banda- ríkjunum í eitt ár. Gylfi lék þrjú ár með meistaraflokki Sindra undir stjórn Ejubs, nýráðins þjálfara meistaraflokks Vals, eitt ár með Stjömunni og hefur núna haf- ið æfingar með meistaraflokki Vals eftir að hafa einbeitt sér að þjálfun síðastliðið sumar. Hvemig ætli honum hafi líkað við Ejub hjá Sindra. „Að mínu mati er hann rosalega góður og agaður þjálfari. Hann kortleggur hvem leikmann út af fyrir sig, er fljótur að sjá hvað viðkomandi getur og hvaða staða hentar honum. Svo er hann mjög skipulagður. Ejub hefur ekki áhuga á að vinna með mönnum sem leggja sig ekki 100% fram.“ Beta segir að Ejub hafi verið lifandi goðsögn á þeirra heimili til þessa. „Ejub undirbýr leikmenn mjög vel fyrir leiki og mín reynsla er sú að menn bera ótta- blandna virðingu fyrir honum og þora hreinlega ekki að gera mistök,“ segir Gylfi. Beta var spurð að því hvað hafl valdið því að hún fór að þjálfa og hvers vegna hún hafi náð svona góðum árangri. „Arangurinn veltur einvörðungu á gífur- legum áhuga á þjálfun. Ef maður leggur sig fram og gefur ríkulega af sér skilar það árangri. Þegar ég sótti um að þjálfa 3.flokkur undir stjórn Betu hefur œft vel í vetur enda til mikils að vinna nœsta sumar. Valsblaðið 1999 41

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.