Valsblaðið - 01.05.1999, Side 18
Hugsaou púsund sinnum,"
gerðu það Itundrað sinnum og segðu það einu sinni", segir Ágiíst S. Björgvinsson að Valsmenn eigi að hafa að leiðarljósi.
Hann er yfirþjálfari yngri flokka Vals í körfubolta og þjálfari 7. 8. og 9. flokks.
Ágúst þjálfari ásamt hinum efnilegu lœrisveinum sínum.
Þótt Ágúst Björgvinsson sé aðeins tví-
tugur er hann þegar orðinn yfirþjálfari
yngri flokka Vals í körfubolta. Einlægnin
og áhuginn skín úr andliti Ágústs þegar
hann ræðir um „drengina“ sína í boltan-
um og það fer ekki á milli mála að þeir
eru í góðum höndum. Ágúst er alinn upp
að Hlíðarenda, með eldrautt blóð í æðum
og þótt flestir körfuboltamenn á hans
aldri sé uppteknir af eigin frama eru
áherslur hans í boltanum frábrugðnar.
„Ég er á síðasta ári í unglingaflokki en
hef ekkert spilað í vetur vegna meiðsla,“
segir Ágúst. „Síðustu árin hafa sprungur
í báðurn sköflungum sett strik í minn
eigin feril en ég hef þó ekki gefið hann
alveg upp á bátinn. I augnablikinu á
þjálfunin hug minn allan.“
Þjálfaraferill Ágústs spannar fjögur ár
en í upphafi var ekki um auðugan garð
að gresja meðal iðkenda. „Þegar Valur
hóf æfingar fyrir stráka sem eru fæddir
1985 var ég einn á æfingum sem þjálfari.
Það mætti enginn. Einn mætti á næstu
æfingu og þá tók ég gleði mína. Síðan
spurðist út að æfingar væru hafnar.“
Ágúst sætti sig illa við fámennið og
tók að heimsækja grunnskóla á höfuð-
borgarsvæðinu. „Ég dreifði miðum í skól-
ana, fór í leikfimistíma í tveimur skólum
og spurði stráka hvort þeir vildu ekki
mæta. Síðan hvatti ég þá sem mættu til
að taka vini sína með á æfingar. Þetta
hefur skilað góðum árangri. Frá því ég
varð yfirþjálfari nú í haust hefur orðið
25% aukning á iðkendum, aðallega í
Minni-boltanum. Þátttakan síðustu ár hef-
ur verið skelfileg. Núna erum við með
um 30 stráka í Minni-boltanum. Það
þykir samt ekki gott ef við miðum okkur
við Fjölni sem er með um 80 stráka.“
Hvernig hefur verið staðið að starfi
yngri flokkanna í körfunni hjá Val?
„Síðustu ár hefur lítið sem ekkert verið
hugsað um yngri flokkana. Það hefur
m.a. leitt til þess að þrír Valsmenn, sem
eru allir á svipuðum aldri og ég, hafa far-
ið í önnur félög auk nokkurra annarra.
Þeir eru allir landsliðsmenn í dag og allir
yfir tveir metrar. Núna stöndum við
frammi fyrir „gati“ í yngri flokkunum
vegna þess að það vantar harðan kjama
sem gæti skilað sér upp. Þetta er afleið-
ing afskiptaleysis. 10. flokkur er mikið
að koma til um þessar mundir og gæti
kjaminn í honum, auk lykilmanna í enn
yngri flokkum, staðið sig mjög vel í
meistaraflokki í framtíðinni."
Hvaða markmið hefurðu
sett þér sem yfirþjálfari?
„Ég legg mikið upp úr aga og kalla
flokkana mína „litla herinn“. Þessi mikli
agi lagðist ekkert sérstaklega vel í marga
foreldra í upphafi en núna held ég að
þeir séu orðnir sáttir. Metnaðargjamir
krakkar vilja mikinn aga og aðhald.
Hvorutveggja er til staðar hjá mér. Ég
veit að það sem ég segi eru að vissu leyti
lög hjá strákunum. I 7. flokki eru nánast
eingöngu nýir strákar en hann, auk 8. og
9. flokka, eru glæsilegir flokkar. Þeir eru
allir í eins búningum á æfingum, leggja
sig ávallt fram og eru flottastir á landinu.
Það er ekki spuming. Núna ætla ég að
skoða einkunnir strákanna úr skólunum
til að geta fylgst með hvemig þeim
gengur utan æfingatíma. Góður árangur í
íþróttum helst yfirleitt í hendur við góð-
an námsárangur. Ég þekki það sjálfur að
íþróttimar héldu mér gangandi í skólan-
um.“
18
Valsblaðiö 1999