Valsblaðið - 01.05.1999, Blaðsíða 24
dskan Bjarni dskarsson, sem á 27 titla að baki sem þjálfari, mun hugsanlega eignast fyrsta
Valsbarnið árið 2000. Hann er hálfgeröur „gúru" í þjálfun yngri flokkanna og er aöstoöar-
þjálfari meistaraflokks. dskar áskar sér ýmislegs og draumar hans munu eflaust rætast.
Hann segir frá eftirminnilegum þjálfurum og hvað skiptir mestu máli í þjálfun ungmenna.
Skipstjórar meistaraflokks, Geir Sveinsson þjálfari og Óskar Bjarni Óskarsson aðstoð-
arþjálfari.
Ég hef það stundum á tilfinningunni að
Oskar Bjami Oskarsson þjálfari sé séra
Friðrik Friðriksson endurfæddur. Sjálfur
kynntist ég aldrei séra Friðrik en ég get
ímyndað mér að hann hafi komið fram
við drengina í Val á svipaðan hátt og
Oskar Bjami kemur fram við unga fólkið
í Val. Hann er leiðtogi og fyrirmynd og
hefur lagt grunninn að framtíð fjöl-
margra ungra handknattleiksiðkenda jafnl
innan vallar sem utan. Það er ákveðin
kúnst að kenna krökkum, fá þá til að
hlusta og leggja sig fram og umfram allt
að varða þann veg sem skiptir mestu
máli fyrir þá í framtíðinni. Oskar leggur
sig ávallt fram, er vakinn og sofinn í
starfi sínu sem þjálfari, og hvort sem
hann talar um handbolta, Val eða krakk-
ana endurspeglast umhyggjan og áhug-
inn í andlitsdráttum hans, handahreyf-
ingum og bliki augnanna. Valshjartað er
stórt. Oskar er í sambúð með Ömu Þór-
eyju fimleikadrottningu úr Gerplu en þau
eiga von á erfingja í febrúar.
Óskar Bjami, sem er 26 ára, mætti á
sína fyrstu æfingu hjá Val 8 ára gamall í
fylgd með náfrænda sínum Magnúsi
Blöndal. Magnús var einn helsti ung-
lingaleiðtogi sem Valur hefur átt en hann
dó úr lungnakrabbameini 24 ára gamall,
þann 12.12 ’89. Óskar æfði með 5. flokki
ásamt Degi Sigurðssyni en þá voru ekki
til flokkar fyrir enn yngri iðkendur.
„Dagur var nánast í byrjunarliðinu þótt
hann væri þremur árum yngri en hinir
strákarnir enda kom fljótt í ljós að hann
var undrabarn í boltanum. Ég fékk að
fljóta með af því ég að var frændi Magn-
úsar og léttur brandarakarl," segir Óskar.
Óskar „ólst upp“ með Degi, Ólafi Stef-
ánssyni, Valgarð Thoroddsen, Val Emi,
Sveini Sigfinnssyni og Theódóri Hjalta-
syni í yngri flokkunum undir stjóm
Theodórs Guðfinnssonar. „Teddi var
með okkur í fjölda ára og þessi harði
kjami leikmanna hittist enn í dag. A
uppskeruhátíðinni gefum við t.d. bikar
sem kallast ’73 bikarinn en sú stelpa í 4.
flokki fær hann sem er besti félaginn.
Áþekkur bikar, Maggabikarinn, er gefinn
í 4. karla til minningar um Magnús
Blöndal."
24
Valsblaðið 1999