Valsblaðið - 01.05.1999, Page 37

Valsblaðið - 01.05.1999, Page 37
Eftir Þongrím Þráinsson Bipgir Máp flrnason leihmaður 10. flohhs í körfubolta Birgir Már Ámason er Vaismaður fram í fingurgóma og hefur leikið við hvum sinn fingur frá því hann hætti í fimleik- um og mætti á sínu fyrstu körfuboltaæf- ingu hjá Val 11-12 ára gamall. Hann er nemandi í 10. bekk í Hlíðaskóla og býr í Suðurhlíðum eða „á milli lífs og dauða“ eins og hverfið er kallað. Hann tekur undir það að starfsemi yngri flokkanna hjá Val í körfubolta hafi ekki verið upp á það besta síðustu ár en segist samt njóta þess að leika með Val. „Við töpum reyndar alltaf þegar við spilum en þetta hlýtur að fara að koma hjá okkur. Sæ- valdur er mjög góður þjálfari og við eig- um allir eftir að bæta okkur mikið. Við æfum 5 sinnum í viku sem er mun betra en 3 sinnum eins og var í fyrravetur.“ Birgir Már segist vera „power forward" á leikvelli en kann ekki að orða það á ís- lensku. Hann telur að sprettharka og hraða- breytingar séu sínir helstu kostir en að hann megi bæta sig meira vamarlega. „Eg gæti þess yfirleitt að borða tveimur tím- um fyrir æfingar til að hafa kraft og er alltaf að minnka kókþambið. Það dregur úr manni mátt og eyðileggur tennurnar.“ L.A. Lakers er eftirlætislið Birgis Más en hann segist taka NBA deildina fram yfir úrvalsdeildina á Islandi. „Áður hélt Birgir Már hefur það að markmiði að komast íNBA-deildina. ég með Chicago Bulls enda var Michael Jordan snillingur og er það örugglega ennþá. Núna er Coby Brian sá besti.“ Drenginn dreymir um að geta skorað sem mest í körfubolta og hann segist hafa það markmið að komast að hjá ein- hverju liði í NBA-deildinni í framtíðinni. „Næsta vetur fer ég líklega í MH og síð- an gæti ég hugsað mér að fara í háskóla í Bandaríkjunum og stunda körfubolta.“ Fpá Afníku til Islands Vilbong Gufilaugsdóttir íslandsmeistari öslar nú snjú upp í ökkla í stað pess að npna júlapakka í rúmlega 40 stiga hita „Afríkustúlkan" Vilhorg Guðlaugsdóttir er ánægð í Val. Á þessum árstíma er liðlega 50 gráðu hitamunur á Islandi og Eþíópíu. Jólin eru heitasti árstíminn í Afríku en Vilborg Guðlaugsdóttir, leikmaður í hinum sigur- sæla 2. flokki í knattspyrnu, fæddist í Addis Ababa og bjó þar í 12 ár. Foreldrar hennar voru kristniboðar í Eþíópíu en fluttu heim fyrir rúmu ári. Það varð Vil- borgu til happs að flytja á Þórsgötuna, fara í Austurbæjarskóla og í Val. Hún lék sér í fótbolta með vinum sfnum í Afríku, bæði innfæddum og erlendum, og býr yfir góðri boltameðferð. Samt voru engar skipulagðar æfingar í Afríku. „Jú, það voru mikil viðbrigði að koma heim. Eg sakna hitans og vina minna mest. Annars fannst mér ekkert annað félag en Valur koma til greina. Pabbi er mikill Valsari og margir frændur hans líka.“ Gætirðu hugsað þér að fara aftur til Afríku? „Já, ég gæti það en þar er ekki um marga framhaldsskóla að ræða. Ef við förum út aftur verður það ekki fyrr en eftir nokkur ár.“ Eru innfæddir mjög forvitnir? „Það kemur fyrir. Reyndar eru margir hvítir í Afríku en fólk var oft að snerta hárið á mér og svoleiðis." Lentirðu aldrei í útistöðum við villt dýr og huggulegar pöddur? Þú hefur ekki fengið krókódíl upp í rúm? „Nei, maður er fljótur að venjast þessum dýrurn. Eg lenti aldrei í neinu hættulegu. Pabbi var einu sinni bitinn af sporðdreka en það bjargaðist.“ Vilborg segist vera mjög ánægð með andann í leikmannahópi Vals og er sann- færð um að árangur liðsins verði ekki lakara á næsta ári. 37

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.