Valsblaðið - 01.05.1999, Page 32
Langflottastar og bestar með sigurlaunin á Islandsmótinu. Kolbrún Franklín (h’),
Berglind Iris, Marin Sörens og Anna María.
Markús Máni, Benedikt og Fannar Örn
fagna Islandsmeistaratitlinum í 3. flokki
með sigurbros á vör.
Leikmaður flokksins:
Friðrik Brendan Þorvaldsson
Ahugi og ástundun:
Agnar Hafliði Andrésson
Framfarir: Patrik Þorvaldsson
4. flokkur kvenna
Flokkurinn byrjaði ágætlega og stefndi í
að Erlingur þjálfari myndi enda meðal 4
efstu liðanna. En stelpurnar höfðu ekki
þolinmæði í biðina og fótboltinn átti hug
þeirra allan þar sem þær eru allar mjög
efnilegar. Eftir áramót voru því mjög
fáar stelpur eftir og nú í ár er aðeins ein
stúlka eftir, Elfa Björk.
Þjálfariflokksins: Erlingur Richardsson
Leikmaður flokksins:
Elfa Björk Hreggviðsdóttir
Ahugi og ástundun: Fríða Sigurðardóttir
Framfarir: Kristín Sigurðardóttir
5. flokkur karla
Þótt uppskeran í þessum flokki hafi ekki
verið titlar eru þarna á ferðinni margir
mjög efnilegir drengir sem eiga eftir að
láta að sér kveða í framtíðinni. Eldra árið
var tjölmennt og gott en það vantaði
fleiri drengi á yngra ári. Flokkurinn
komst ekki í 10-liða úrslit en það munaði
þó litlu. Framfarimar voru góðar hjá
drengjunum enda Sigurður orðinn öllu
vanur í þjálfun hjá Val og alið upp marga
stráka sem nú eru að koma upp í meist-
araflokkinn.
Þjálfari flokksins: Sigurður Sigurþórsson
Leikmaður flokksins: Guðmundur Jónss.
Ahugi og ástundun: Tómas Þorvaldsson
Framfarir: Davíð Stefánsson
5. flokkur kvenna
Síðasti vetur var stelpunum erfiður enda
meirihluti ilokksins á yngra ári. Kjarni
flokksins var mjög duglegur að æfa og
það verður að halda vel utan um þessar
stúlkur, því þegar þær springa út þá eiga
þær eftir að verða verulega góðar.
Þjálfari flokksins:
Stefán Logi Sigurþórsson
Leikmaður flokksins:
Stefanía Lára Bjamadóttir
Ahugi og ástundun:
Stefanía Gunnarsdóttir
Framfarir: Gréta Þórisdóttir
6. flokkur karla
Um 25 drengir lögðu mikla vinnu á sig
yfir veturinn og fóm meðal annars í æf-
ingaferð á Hvolsvöll. Uppskeran varð
eftir því, A, B og C-liðin komust í úrslit
og A-liðið endaði í 3. sæti eftir sigurleik
gegn KR. Þessi flokkur gæti orðið næsti
sigurflokkur á eftir '81 árgangnum.
Þjálfarar flokksins: Oskar Bjami og
Pétur Axel
Leikmaður flokksins:
Fannar Þór Friðgeirsson
Áhugi og ástundun:
Jóhann Þorvaldur Bergþórsson
Framfarir: Elvar Freyr Amþórsson
6. flokkur kvenna
Stúlkuflokkamir hjá okkur verða sífellt
fjölmennari og öflugri með hverju árinu
enda Margrét Hafsteinsdóttir búin að
skapa ákveðna hefð þar á bæ. 6. flokkur-
inn stóð sig mjög vel og endaði í 3. sæti
eins og strákamir. Það þarf að halda vel
utan um þessar ungu og upprennandi
stjömur framtíðinnar.
Þjálfari flokksins: Margrét Hafsteinsd.
Leikmaður flokksins: Dóróthe Guðjónsd.
Ahugi og ástundun: Thelma Benediktsd.
Framfarir: Högna Hringsdóttir
7. flokkur karla
7. flokkamir taka þátt í vinamótum og
stóðu drengimir sig vel að sögn Erlings
sem þjálfaði þá. Flokkurinn stækkaði ört
yfir veturinn enda var þjálfarinn dugleg-
ur að smala krökkum úr skólunum í
kring.
Þjálfarar flokksins: Erlingur Richards-
son og Freyr Brynjarsson.
7. flokkur kvenna
Sá flokkur sem stækkaði einna mest var
7. flokkur kvenna og virðist sem kvenna-
flokkamir okkar eigi eftir að verða fjöl-
mennir á komandi árum með áframhald-
andi þróun. Erlingur vann frábært starf
með stelpumar og ekki eru þær í vond-
um málum í dag með Margréti og Lísu
Njálsdóttur við stjórnvölinn.
Þjálfarar flokksins: Erlingur Richards-
son og Freyr Brynjarsson.
Uppskeran á síðasta vetri var mjög
góð, góðir titlar í 3. flokki karla og
kvenna og 2. flokki kvenna og mikil
fjölgun í yngri flokkunum. Valsmenn
leggja mikla rækt við yngri flokkana og í
ár eru mjög hæfir þjálfarar með alla
flokka félagsins. En aðalsmerki Vals hef-
ur verið hve margir leikmenn hafa skilað
sér í meistaraflokkinn og látið að sér
kveða þar. Yngri flokkarnir eru undir-
búningur fyrir meistaraflokkinn og sú
kennslulína sem handknattleiksdeildin
vinnur að gerir það að verkum að í dag
eigum við meistaraflokka þar sem meiri-
hlutinn er alinn upp hér að Hlíðarenda
og margir bíða eftir að komast að. Við
þurfum ekki að kvíða framtíðinni og
þurfum ekki að ausa peningum í útlend-
inga eins og sum félagslið.
32
Valsblaðiö 1999