Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 13
B.JÖRN HALLSSON
9
leitað til Björns og Hólmfríðar um liúsrúm fyrir ]iing-
málafundi, leiðarþing og samkomur fyrir yngra fólkið.
Það' var auðsótt mál, því hjónin höfðu yndi af margs
kyns mannfagnaði, einkum söng og liljóðfæraslætti. Hólm-
fríður lék á orgel, og Björn var alla tíð góður rachhnað-
ur fram á efri ár.
Rangárbú blómgaðist vel á þessum árum, tún var slétt-
að og fært út. Brátt lilóðust alls konar störf í almennings-
þágu á Björn. Hreppstjóri varð liann 1905, og 1908 var
hann kosinn í stjórn Pöntunarfélags Fljótsdalshéraðs á
Seyðisfirði, og á þeim árum, er félagið var lagt niður,
stóð stjórnin fvrir fullum skilum til lánardrottna. Stóð
það um nokkurra ára bil og þótti vandaverk, sem þó
leystist vel af liöndum. Og 1909 var nýtt félag stofnað,
nokkurskonar arftaki pöntunarfélagsins, Kaupfélag Hér-
aðsbúa með bækistöð á Reyðarfirði, sem ]>ótti vænlegast
og sjálfsagðast vegna akbrautarinnar um Fagradal, sem
lokið var við liaustið 1909 í Egilsstaði. Björn var kosinn
í fyrstu stjórn þessa félags og var leilað til eina bóndans,
sem liafði þekkingu og reynslu í verzlunarmálum, Jóns
Bergssonar á Egilsstöðum, um forstöðu félagsins. Átti
Björn frumkvæði að því. Jón brást vel og drengilega
við, sem sást greinilegast á því, að bann lagði sveitaverzl-
un sína um þetta leyti niður, til þess að geta liðsinnt
þessum nýju samtökum bændanna sem bezt. Þetta lánað-
ist vel, og um Jiessar breytingar og baráttu má lesa í 50
ára starfssögu Kaupfélags Héraðsbúa eftir Benedikt Gísla-
son frá Hofteigi og raunar víðar á ýmsum tímamótum
félagsins.
Björn var í stjórn þessa félags 1909—1910 og aftur
1918—1954. Formaður og fundarstjóri var hann í 33 ár
samfleytt, og á síðasta fundinum, sem hann stjórnaði var
hann kosinn lieiðursfélagi þess.
Björn gaf kost á sér til þingmennsku og sal á þingum
1914—15 og aftur 1920—23 og átti þátt í samvinnulöggjöf-
inni o. fl. félagsmálum. 1 stjórnarnefnd búnaðarskólans