Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 135
SKYRSLUR STARFSMANNA
131
Þaðan fóru flestir loftleiðis austur og heim. Ferðin tók
10 (laga, frá 9.—19. júní, og þótti takast ágætlega, þrátt
fyrir vont veður á Miðvesturlandi. Var áætluninni þann-
ig hagað, að þeir Austanmenn fengu að gista alla þá, sem
á undanförnum árum hafa lagt leið sína til Austurlands
í kynnisferðir.
Á sama tíma og Austanmenn voru í þessari ferð, stóð
önnur kynnisför yfir. Voru það um 65 manns, þar af
22 hjón, undan Vestur-Eyjafjöllum. Var sú för farin í
tilefni 75 ára afmælis húnaðarfélags sveitarinnar, og stóð
yfir frá 16.—20. júní, var farið til Norðurlands. Þar sem
ég var þessa daga með Austfirðingum, tók Gunnar Árna-
son, skrifstofustjóri, að sér að stjórna ferð þeirra.
Þeir Eyfellingar fóru fyrsta daginn í Vestur-Húna-
vatnssýslu, þaðan norður í Aðaldal. Þriðja daginn fóru
þeir um Ásbyrgi og að Dettifossi til Mývatnssveitar. -—•
Fjórða daginn var setzt að í Austur-Húnavatnssýslu, en
fimmta daginn farið alla leið heirn. Þótti ferð þeirra
takast ágætlega. Gist var á bæjum allar nætur.
Þann 22. júní fór ég aftur að heiman og norður í
Skagafjörð vegna kynnisferðar bænda þaðan austur á
land, frá Búnaðarsambandi Skagfirðinga. Mánudaginn
25. var lagt upp í ferðina frá Varmahlíð. Var það 120
manna liópur, karlar og konur. Var farið fyrsta daginn
í Þingeyjarsýslur og gist á svæðinu frá Aðaldal og norð-
ur í Kelduhverfi. Annan daginn var komið í Ásbyrgi og
að Dettifossi, en gist á Jökuldal og í Hróarstungu. Þriðja
daginn var ekið að Skriðuklaustri, VaIJ)jófsstað og Hall-
ormsstað og gist á Héraði kringum Egilsstaði. Fjórða
daginn var haldið áfram alla leið suður í Hornafjörð, og
var það erfiðasti dagurinn, einkum ])egar farið var um
Berufjaröarströndina, Jtar reyndust niðurgrafnar lækj-
arskorur mestu torfærur fyrir langferðahílana, og liefði
bílalestin ekki komizt leiðar sinnar þann dag, ef sjálf-
boðaliðar, bændur af ströndinni, hefðu ekki veitt drengi-
lega hjálp.