Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 201
197
SAUÐFJÁRRÆKTARFÉLÖGIN
67.1 kg. I tveim öðrum félögum vógu ærnar meira en 65
kg, í Sf. Austra, Mývatussveit, 66.5 kg og Sf. Óspakseyrar-
Iirepps, 65.4 kg. Léttastar voru ærnar í Sf. Borgarhafnar-
hrepps 49.9 kg.
Ærnar, sem vegnar voru bæði að hausti og vori, 32514
að tölu, þyngdust til jafnaðar 5.2 kg yfir veturinn eða
1.9 kg meira en veturinn áður. I tveim félögum léttust
ærnar yfir veturinn, í Sf. Von, Laxárdalshreppi og í Sf.
Geitliellahrepps. f 52 félögum þyngdust ærnar meira en
5 kg og í 6 þeirra meira en 10 kg.
Frjósemi ánna
Af 40059 ám, sem lifandi voru í fardögum, voru 709
algeldar eða 1.8%, 19816 einlembdar eða 49.4%, 19301
tvílembd eða 48.2% og 233 þrílembdar og fleirlembdar
eða 0.6%. Þetta er meiri frjósemi en áður.
Alls fæddust 59126 lömb undan 40059 ám, sem lifandi
voru í fardögum eða 147.6 lömb eftir liverjar 100 ær.
Frjósemi ánna sveiflast nokkuð frá ári til árs. 1960 fædd-
ust 142 lömb eftir 100 ær, 1959 140 lömb, 1958 146 lömb.
Til nytja komu nú 55860 lömb eða 139.4 eftir hverjar
100 ær. Frá fæðingu til liausts fórust 3266 lömb eða 5.5%
af fæddum lömbum. Þetta eru 0.2% minni vanhöld en
árið áður.
1 16 félögum átti meira en 70% ánna tvö lömb eða
fleiri og í 3 eftirtöldum félögum meira en 80%. í Sf.
Austra, Mývatnssveit, 85.3%, Sf. Vestra, Svarfaðardal,
83.3% og Sf. Mývetninga 81.7%.
í 36 félögum komu 150 lömb eða fleiri til nytja eftir
hverjar 100 ær, og í 6 félögum yfir 170 lömb, sjá töflu 1,
flest í Sf. Austra, Mývatnssveit, 178.
1 2 félögum komu til nytja færri en 110 lömb eftir 100
ær, fæst í Sf. Hegra, Rípurlireppi 104 lömb. Aðeins í 1
félagi var færra en 20% ánna tvílembdar, í Sf. Svína-
vatnshrepps, 13.1%.