Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 41
SKYRSLU R STARFSMANNA
37
Önnur störf:
Við tvö vatnsföll gerði ég athuganir vegna landbrots.
Að beiðni Fljótslilíðinga skoðaði ég Þveráraura til und-
irbúnings áætlunar um stokklagningu Þverár og lækja,
sem í bana falla, allt frá Árkvarnarlæk og niður til Lamb-
eyjar.
Stjórn Búnaðarfélags Islands kvaddi mig ásamt Ingólfi
Þorsteinssyni, (fyrrv. framkvæmdastjóra Flóaáveitunnar),
til samstarfs í nefnd með fulltrúa frá Flóaáveitunni, Jör-
undi Brynjólfssyni, fyrrv. alþingismanni. Var nefndin
skipuð að beiðni stjórnar Flóaáveitunnar, og henni falið
að gera í aðaldráttum tillögur um framhald og endur-
bætur á aðalskurðakerfi Flóaáveitusvæðisins og ennfrem-
ur að athuga, Iivort þörf sé að breyta Flóaáveitulögun-
um. Nefndin skilaði álitsgerð.
Vetrarvinna mín var að venju: Gerð áætlana og upp-
drátta auk ýmissa ritstarfa. Enn fremur annaðist ég skrif-
stofustjórn og skjalavörzlu Búnaðarþings og bjó Bún-
aðarþingstíðindin undir prentun. — Fundi Tilraunaráðs
jarðræktar sat ég eins og að undanförnu.
Þegar ég, við þessi áramót, skila minni stuttorðu starfs-
skýrslu, verða liúsbóndaskipti við Búnaðarfélag íslands.
I því tilefni vil ég nota tækifærið og þakka fráfarandi
búnaðarmálastjóra, Steingrími Steinþórssyni, fyrir langt
og gott samstarf. Mér er enn minnisstætt, þegar lionum
var með utanaðkomandi ofríki þrengt í stöðu búnaðar-
málastjóra, árið 1935, gegn vilja flestra starfsmanna Bún-
aðarfélags Islands. Hér var ekki til að dreifa persónu-
legri andúð eða vantrausti um liæfileika, lieldur binu,
að sú skoðun var ríkjandi innan Búnaðarfélags Islands
|>á eins og nú — að starfsmönnum sérbverrar opin-
berrar stofnunar eigi að vera opin leið til að vinna sig
upp innan stofnunarinnar, eftir því sem hæfileikar leyfa.
Enda væru illa valdir starfsmenn að fjölmennri stofnun,