Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 139
SKÝRSLUR STARFSMANNA
135
I marzmánuði fór ég nokkrar styttri ferðir um nær-
sveitir og Árnessýslu, og liitti að máli ýmsa aðila, sem
liafa á liendi framkvæmdir í dýravinnslunni. Fór auk
þess veiðiferðir, en árangur af þeim var einn refur og
nokkrir minkar.
Um mánaðamót marz—apríl fórum við Guðbjörn Guð-
mundsson um tvær lielgar að Reyðarvatni á afrétti Borg-
firðinga. Ók um við á traustum ís eftir vatninu að Reyð-
arlæk, Fossá og að Grímsá, þar sem liún fellur úr vatn-
inu. Yar mikið um minkaslóðir þarna, og dvöldum við
j)ar eina nótt um livora helgi. Skutum aRs 8 minka, sein
leituðu að ármynninu eftir silgungi. Virðist j»etta tilvalin
veiðiaðferð, j)ar sem skilyrði eru góð.
10. apríl fór ég norður í Húnavatnssýslu.
19. apríl ferð í Skaftafellssýslur.
23. apríl ferð í Árnessýslu.
4. maí ferð í Rangárvallasýslu.
18. maí fór ég um Borgarfjörð, Dali, Fellsströnd,
Klofning, Skarðsströnd að Reykhólum.
25. maí ferð að Reynifelli í Fljótshlíð.
8. júní ferð um Lundarreykjadal, Uxahryggi, Þing-
velli.
13. júní ferð í Rangárvallasýslu.
19. júní fór ég ásamt Gísla Kristinssyni frá Hafranesi
um Barðaströnd og Isafjarðarsýslur.
Á s. 1. ári urðu menn j)ess varir, að minkur var kominn
að Djúpi, Arnarfirði og víðar J)ar í grennd. 1 samráði
við Jóhann Gunnar Ólafsson, sýslumann, var ráðgert, að
ég kæmi vestur, jiegar snjóa leysti, og útvegaði veiði-
inann og undirbyggi skipulegar dýraleitir. Við Gísli fór-
um vestur um alla Barðaströnd, allt vestur að Látrabjargi.
Unnum við tvo minka, annan jieirra í Múlahreppi. Er
jiað sá fyrsti, sem næst það vestarlega á Barðaströnd.
Síðan liéldum við norður um aRa Vestfirði. Fórum sjó-
veg frá ísaf jarðarkaupstað í Jökulfirði, gengum yfir
Láglieiði, niður í Furufjörð á Ströndum. Lék grunur á,