Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 109
SKYRSLUK STARFSMANNA
105
allt strangfaglegt. Sérstaklega má telja viðtalsþætti nær
því að vera af fréttatagi stundum fremur en eiginlegar
leiðbeiningar eða fyrirmyndir um búnað.
Einatt ber það við, að bæjarfólk spyr, livers vegna bún-
aðarþátturinn nái ekki einnig til hlutverka búsmæðra
sveitanna. Því er að svara, að á dagskrá útvarpsins eru
þættir fyrir kvenfólk, og þá húsmæður einnig, í þrennu
lagi að minnsta kosti, og hefur því ekki þótt fært að
seilast nema stutt inn á það svið í svo afmörkuðum þætti
sem búnaðarþátturinn er. Það er staðreynd, að fjöldi
bæjarbúa blustar á búnaðarþáttinn, einkum þegar um
viðtöl er að ræða.
Á árinu 1962 var búnaðarþátturinn fluttur 37 sinnum,
og voru þar flytjendur 40 samtals. Til viðbótar er svo
bændavikan með 15 flytjendur. Utvarpstími búnaðarþátt-
arins nam 689 mínútum og bændavikunnar 240 mínútum,
eða samtals 929 mínútum um landbúnað í þessum tveim
atriðum á árinu, og er þá ekki talin kvöldvaka Búnaðar-
félags Islands. Sjálfur flutti ég 7 útvarpserindi og liafði
6 samtöl með bljóðnemann á árinu, heimsóknir bjá ein-
staklingum eða stofnunum.
4. Alifuglaræktin
Svo sem tími minn hefur leyft bef ég á árinu aðstoðað
þá, sem til mín liafa leitað um ráð og dáð í þeim efnum,
er varða alifuglarækt og önnur atriði, sem liana snerta.
Allmargir aðilar stunda nú alifuglarækt svo um mun-
ar, og nokkrir þeirra eru leiknir í því starfi og fá af
því góðan árangur.
Það þekkist nú naumast lengur að láta hænurnar lifa
árum saman arðlausar, ættliðaskiptin eru ör, og við það
er miðað að fá sem mestan arð eftir hvern fugl. Á árinu
var framboð eggja minna en eftirspurn, ungasala varð
mjög mikil og hænsnastofninn liefur því aukizt verulega,
en það getur aftur leitt til offramleiðslu á fyrri helmingi