Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 38
34
BUNAÐARRIT
þetta stöðvazt. Er það einkum Búnaðarbankinn, seni liér
hefur átt lilut að máli, en einnig fleiri aðilar.
Þessi aðstaða í fjármálum byggingarinnar, sem liér
hefur verið drepið á, hefur verið mjög óæskileg. Yíxillán
eru dýr, en þó má segja, að það liafi ekki verið það versta,
heldur liin sífellda óvissa um greiðslugetu, því nær dag-
lega eða vikulega í marga mánuði. Hefur þetta stórlega
tafið framkvæmdir á þann liátt, að ekki hefur verið unnt
að leggja nægilega álierzlu á að hraða verkinu, svo sem
þurft hefði að vera, sökum þess að ekki var vitað fyrir-
fram, hvort liægt yrði að standa í skilum. Nú standa von-
ir til, að úr rætist með fast erlent lán, sem virðist vera
hagstætt. En ekkert skal fullyrt um, hvort sú lántaka
tekst.
Ymsir munu undrast yfir því fjármagni, sem búið er
að verja til þessarar liúsbyggingar, og er það eðlilegt.
1 byrjun var gert ráð fyrir, að hún mundi kosta 25—30
milljónir króna. En þess ber að gæta, að liúsið er mun
stærra en upphaflega var ráðgert, en auk þess hefur bygg-
ingarkostnaður því nær tvöfaldazt síðan á árinu 1957. Á
síðastliðnu ári var áætlað, að allur byggingarkostnaður,
ásamt innbúi, vélum og alls konar tækjum, mundi nema
um 100 milljónum króna. Er það ekki mjög langt frá
því, að svara til þeirrar ágizkunar, sem gerð var í fyrstu.
þegar allt er tekið með í reikninginn. Engu skal hér um
það spáð, hvort áætlun sú stenzt, og verður reynslan að
skera úr því. En áfram verður að halda, þar til fram-
kvæmdum hefur verið lokið að fullu.
Þess ber að geta, að byggingarnefndin liélt marga fundi
á árinu til að ráða fram úr ýmsum málum varðandi
bygginguna. Eru fundargerðir nefndarinnar bókaðar í
gerðabók B. 1.
Einnig Iiélt framkvæmdanefndin mjög marga fundi, oft
með verkfræðingum og verkstjórum, sem við bygginguna
vinna.
Rétt er að taka fram, að skömmu fyrir jól samþvkkti