Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 83
SKÝRSLUI! STARFSMANNA
79
Skrifstofan
Störfin á skrifstofunni þann tíma, sem ég var ekki
fjarverandi, voru með sama liætti og áður. Ég svaraði
bréfum, skrifaði mörg bréf, einkum í sambandi við starf-
semi sauðfjárræktarfélaganna, og ræddi við marga, sem
á skrifstofuna komu til að leita upplýsinga varðandi
sauðfjárrækt og annað, sem snertir landbúnað. Ég yfir-
fór nýjar samþykktir sauðfjárræktarfélaga, reiknaði út
framlög til sauðfjárræktarbúanna og sauðfjárræktarfé-
laganna og yfirfór ýmis erindi send félaginu til umsagn-
ar. Ég samdi ýmist einn eða með öðrum fimm greinar í
Búnaðarritið 74. árg., og nú eru tvær greinar eftir mig í
prentun í 75. árg. sama rits.
Árið 1961 samdi ég allýtarlega yfirlitsritgerð undir
fyrirsögninni Tilrauna- og rannsóknamál landbúnaðarins.
Ritgerðin var birt í ritinu Vísindin efla alla dáð, sem
gefið var út í tilefni 50 ára afmælis Háskóla Islands.
Búnaðarfélag Islands keypti allstórt upplag af sérprent-
un á ritgerð þessari.
Þá samdi ég á ensku yfirlitsgrein um niðurröðun til-
rauna þeirra með notkun hormóna til þess að auka frjó-
semi sauðfjár, sem ég hef unnið að við Búnaðardeihlina
mörg undanfarin ár. Grein þessa kallaði ég „Augmenta-
tion of Fertility of Iceland Ewes witli Pregnant-Mare Ser-
um in Successive Years“, og var hún birt í hrezka tíma-
ritinu „Journal of Reproduction and Fertility“ 1962, 3.
hefti.
Enn fremur flutti ég nokkur útvarpserindi um sauð-
fjárrækt, skrifaði grein í Frey og átti viðtöl við dagblöð
um sauðfjárrækt o. fl.
Fyrstu 8 mánuði ársins 1961 var Olafur Ásgeirsson, bú-
fræðikandidat frá Hvannevri, mér til aðstoðar á skrif-
stofunni. Hann vann einkum að uppgjöri og endurskoð-
un fjárræktarfélagsskýrslna. Sveinn Hallgrímsson, bú-
fræðikandidat frá Hvanneyri, sem nú stundar framlialds-