Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 174
170
BÚNAÐARRIT
Mál nr. 12
Frumvarp til lyfsölulaga. Sent af Dýralœknafélagi
íslands:
Eftir að málið var skrásett til Búnaðarþings, var það
tlregið til baka og því aldrei vísað til nefndar.
Mál nr. 13
Erindi Búnaöarsambands VestfjarSa um breytingu á
jar&rœktarlögum.
Var vísað til jarðræktarnefndar, en hlaut ekki af-
greiðslu.
Mál nr. 14
Erindi Búna&arsambands Vestfjar&a um útgáfu dýra-
lœkningabókar.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþvkkt
var með 22 samhlj. atkv.:
Búnaðarþing ályktar að fela stjórn Búnaðarfélags Is-
lands að atliuga möguleika á útgáfu nvrrar bókar um
tlýralækningar, er orðið geti til leiðbeiningar bændum.
GreinargerS:
Bók sú um dýralækningar, sem Magnús heitinn Einars-
son samdi, er nú orðin allfágæt, og þó hún væri góð á
sínum tíma, þá svarar hún ekki nema að nokkru leyti
þeim kröfum, sem nú myndu gerðar til slíkrar bókar,
svo breyttar sem kringumstæður eru, og þótt sú þjónusta,
sem dýralæknar veita nú, sé ósambærileg við það, sem
áður var, er bún þó enn í þeim landslilutum, sem strjál-
býlir eru og afskekktir, alls ófullnægjandi, og er það
engin tilviljun að úr einum þeim landslduta er þetta
erindi komið til Búnaðarþings.
Að sjálfsögðu myndi útgáfa bókarinnar kosta mikið
fé og fengi að líkindum ekki marga kaupendur miðað
við aðrar bækur, en liins vegar gæti liún, ef vel tækist,
leyst margan vanda sem lijálp í viðlögum, þar sem ekki