Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 111
SKÝRSLUR STARFSMANNA 107
gerða þeirra aðila, seni afneita flokkun og eðlilegri með-
ferð eggja.
Skipulagslaus framleiðsla unga getur einnig stöðugt
orðið til þess, að offramleiðsla verði í bili og þar með
sóað erlendu fóðri, er verður að of litlu notagildi, því að
markaðsjöfnun er naumast til og liagkvæm geymsluskil-
yrði skortir.
Því er auðsætt, að þótt mikil framför hafi orðið á þessu
sviði, eru mörg vandamál framundan, en allt uin það tel
ég, að aðild mín í þágu upplýsingastarfsemi hafi hvergi
að betra gagni orðið en einmitt á þessum sviðum, enda
þótt unnin liafi verið sem ólaunað hjástundastarf.
5. Ráðningastofa landbúnaðarins
Eins og undanfarin ár lief ég liaft umsjón með Ráðn-
ingastofu landbúnaðarins, en aðalstarfið þar hefur verið
á vegum Ingólfs Þorsleinssonar, með aðstoð Guðmund-
ar Jósafatssonar, er annir voru mestar.
Ráðningar útlendinganna liafa að mestu verið í minni
forsjá. Nokkru fleiri liafa snúið sér til Ráðningastofunn-
ar en árið áður, bæði þeir, sem óska eftir atvinnu, svo
og bændur, er spyrja um vinnuafl.
Eftirspurn eftir karlmönnum hefur sem næst verið
fullnægt, en kvenfólk vantaði og sérstaklega stúlkur,
sem vildu eða gætu tekið að sér ráðskonustörf. Á síð-
asta Búnaðarþingi var um það rætt, að rétt væri að beita
sér fyrir því sérstaklega að útvega konur, sem gætu tekið
að sér heimilisstjórn á sveitalieimilum, en um slíkt er
tómt mál að tala, þegar ekki er völ á liæfu starfsafli til
þeirra hlutverka.
Fyrir fáum árum var liér fjöldi útlendinga við störf í
sveitum. Nú er aðeins lítill hópur útlendinga hér, svo
sem tölur hér á eftir gefa til kynna. Erlendis er kaup
orðið svo hátt, að engin leið er fyrir íslenzka bændur
að keppa á þeim markaði. Hingað koma því nú aðeins
piltar og stúlkur, sem hafa áhuga fyrir að kvnnast landi