Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 57
SK1RSLUR STARFSMANNA
53
kveldi þann 12. júlí. Næstu daga var ég að mestu í
Reykjavík og þann 21. júlí lagði ég af stað austur á land
og dvaldi þar fram til 9. ágúst. Ferðaðist ég nokkuð um
Fljótsdalshérað, Breiðdal, Eskifjörð, Reyðarfjörð, Norð-
fjörð, Seyðisfjörð og Vopnafjörð. Ferðalag þetta til Aust-
firðingafjórðungs var raunverulega mitt fyrsta á þær
slóðir, frá því að ég lióf starf mitt hjá Búnaðarfélagi Is-
lands sumarið 1957, og má segja, að tími liafi verið kom-
inn til að kynnast nokkuð þeim landshluta. Að vísu hafði
ég skroppið austur að Hallormsstað haustið 1957, en bæði
var viðdvöl sú of stutt og tíminn óheppilegur til þess að
kynnast garðrækt og væntanlegum möguleikum á sviði
hennar. Á ferðalagi mínu naut ég ágætrar fyrirgreiðslu
Sigurðar Blöndal, skógarvarðar á Hallormsstað, frú
Fanneyjar Jónsdóttur á Egilsstöðum og Páls Sigbjörns-
sonar ráðunauts, sem koniu mér í samband við ýmsa að-
ila á þeim svæðum, er ég fór yfir. Mér leizt þannig á
Austurland, að víða væru skilyrði og möguleikar sízt
lakari þar til að stunda garðrækt en t. d. á suðurlands-
undirlendi, enda virðist mér, að tiltölulega vellieppnuð
kornrækt að undanförnu bendi eindregið til þess, að svo
muni vera. Þar sem unnt er að rækla korn, má að sjálf-
sögðu einnig rækta rótarávexti, káltegundir og yfirleitt
það grænmeti, sem hér er hugsanlegt að rækta, miðað
við lengd vaxtartímans og hitamagn lians. Aftur á móti
er grænmetisræktun alveg hverfandi víðast hvar aust-
anlands, að undanskilinni kartöflu- og gulrófnarækt, sem
kveður þó ekki lieldur nægjanlega að. Það litla, sem ég
sá af grænmeti, var yfirleitt í mjög góðum vexti og á
svipuðu þroskastigi og það grænmeti, sem ég hafði séð
við Reykjavík um 20. júlí. Skrúðgarðagróður virðist held-
nr ekki standa garðagróðri annars staðar á landinu að
baki livað vöxt snertir, nema síður sé. Trjágróður vex
t. d. frábærlega vel í Egilsstaöakauptúni, og þar álít ég
að megi rækta flestar þær tegundir, sem á annað borð
kemur til greina að rækta hér á landi. Víða í görðum
L