Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 84
80
BUNABARRIT
nám við búnaðarháskólann í Ási í Noregi, vann öSru
bvoru á skrifstofu minni, á meðan ég dvaldi erlendis frá
því í nóvember 1961 jiar til í september 1962. Vann bann
allra nauðsynlegustn störfin, sem fyrir lágu á liverjum
tíma. Guðrún B jörgvinsdótlir tók að sér að gera upp og
endurskoða fjárræktarfélagsskýrslur árið 1962 og hefur
lokið uppgjöri allmargra skýrsbia.
Árni G. Pétursson, nú skólast jóri á Hólum, sem ráðinn
var aðstoðarráðunautur í sauðfjárrækt frá 1. maí 1962 að
telja, en tók aldrei við því starfi, vann veturinn 1961—’62
að jiví að semja töflur í grein um lirútasýningarnar baust-
ið 1961 og ritaði um jiær sýningar, sem liann var dómari
á, sjá Búnaðarritið 75. árg., bls. 60.
Ég kann öllum þessum aðstoðarmönnum mínum beztu
Jiakkir fyrir störf þeirra.
Utanferðir
Dagana 2.—25. júní 1961 var ég ég á ferðalagi um Hol-
land, Vestur-Þýzkaland og Bretland. Sótti ég IV. alþjóða-
ráðstefnu um æxlun búfjár og búfjársæðingar í Scbeven-
ingen í Hollandi og VIII. alþjóðaráðstefnu um búfjár-
rækt í Hamborg. Ólafur E. Stefánsson, nautgriparæktar-
ráðunautur, sótti líka |)essar ráðstefnur, og vísast til um-
sagnar bans um þær í starfsskýrslu hans á bls. 63—65 í
75. árg. Búnaðarritsins.
Að lokinni ráðstefnunni í Hamborg fór ég til Bret-
lands og dvaldi |>ar í sex daga. Heimsótti ég vísindastofn-
anir á sviði landbúnaðarins og kom á bina konunglegu
búnaðarsýningu Skota í Edinborg (The Royal Higliland
Agricultural Sliow).
I desember 1960 bárust landbúnaðarráðherra og bún-
aðarmálastjóra bréf frá landbúnaðarmálaráðuneyti Nýja-
Sjálands, j)ar sem mér var boðið til Nýja-Sjálands til
eins árs dvalar, samkvæmt reglum, sem gilda þar í landi
um að bjóða erlendum vísindamönnum til að vinna J)ar
um skeið, skiplast á bugmyndum við þarlenda vísinda-