Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 14
10
BÚNAÐARI5IT
á EiSum átti hann sæti frá 1905 með nokkrum frávikum,
og prófdómari við skólann var hann alla tíð og ennfrem-
ur við alþýðuskólann frá stofnun hans, þar til hann var
gerður að þriggja vetra skóla, kennurunum |)á fjölgað,
og þeir urðu þá prófdómendur hvorir lijá öðrum. Unt
þetta og fleira má lesa í Eiðasögu Benediktar frá Hof-
teigi.
Gróa móðir þeirra systkina Björns og Þórunnar dó
1919, háöldruð. Mæðgurnar áttu sinn sérhluta í Rangár-
húi, en að öðru leyti var heimilið sameiginlegt á þessum
árum.
Þórunn var atgervis- og greindarkona, og hafði hafið
húskap á Rangá með manni sínum Einari Einarssyni, er
var kennari á Eiðum, en nú var hún ekkja og barnlaus á
Rangá, er Björn tók þar við búi, og styrkti heimilið á all-
an liátt með myndarskap sínum og mannkostum. Giftist
hún aftur 1911 frænda sínuni Pétri smið Björnssyni, en
hann dó eftir tveggja ára hjónaband. Áttu þau eina dótt-
ur barna, Helgu, f. 2. nóv. 1912, er andaðist við nám í
Menntaskólanum á Akureyri 14. nóv. 1930, hin mesta
efnisstúlka. Dvahli Þórunn enn með Birni bróður sínum,
og var einkar kært með systkinunum, enda voru þau lík
á marga lund og tryggð og ættrækni háðurn í hlóð borin.
Er þessa minnzt liér, af því að eigi mundi Björn kjósa, að
sín væri minnzt án þess að minnzt væri á Þórunni syst-
ur lians. Hún flutti að lokum til Seyðisfjarðar og andað-
ist þar 1943.
Hólmfríður, kona Björns, var mikilhæf kona og ágæt
húsmóðir. Hún lézt 1924. Hafði liún verið heilsutæp liin
síðari ár. Meðan hún hélt lieilsu, vékst hún prýðisvel við
þeim vanda, er leiddi af fjarveru manns hennar, t. d. er
liann sat á Alþingi og þá við önnur störf, er að heiman
þurftu að vinnast. Hún varð harmdauði nianni sínum og
hörnum, þá vinum og ættmennum, vegna ljúfrar fram-
komu og mannkosta í ríkum mæli.
Börn þeirra Hólmfríðar og Björns voru þessi: