Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 44
40
BÚNASARRIT
4500 m af lokræsuin í Ási í Ásalireppi. Hugmyndin var,
að lokræsa þar allstórt land í tilraunaskyni, en þar
sem dráttartækið reyndist ekki lientugt til þess að draga
lokræsaplóginn, var liætt við tilraunina þar, en í stað-
inn fengnir um 19 ha af óframræstu landi úr Hofslandi
á Kjalarnesi. Land þetta var ræst fram með opnum
skurðum 1345 m að lengd og síðan lokræst með ræsa-
plógnum, og er lengd ræsa 12422 m á tilraunasvæðinu,
en 880 m utan þess. Land þetta fékkst til 5 ára, og hvílir
sú kvöð á því, að það skuli óhreyft ]ietta tímabil. Bil
milli ræsa er hreytilegt, frá 6—18 m, svo og lengd þeirra,
sem er 277, 309 og 604 m. Tilraun þessari er ætlað að
gefa vísbendingu um, hvaða lengd og breidd milli ræsa
sé hagkvæmust við þær aðstæður, sem þar eru. Gerðar
verða mælingar á úrkomunni, afrennsli hvers einstaks
ræsis og fylgzt með gróðurbreytingunni. Uppskerumæl-
ingar og vatnsstöðumælingar verða gerðar, eftir því sem
þurfa þykir. Þá er fyrirhugað að athuga, hvaða aðferð
muni reynast bezt til þess að breinsa lokræsi, sem stífl-
ast kunna af mýrarrauða, en á því getur verið nokkur
hætta við ræsi af þeirri lengd, sem imi er að ræða.
Það sýnir bezt, hvað bændur eru vakandi fvrir öllum
nýjungum, að Yélanefnd hafa þegar borizt fleiri um-
sóknir um afnot af plóginum en liægt er að sinna á næsta
sumri.
4. Hreppsnefnd Súðavíkurhrepps hafði óskað eftir
kaupum eða eignarnámi á Verzlunarlóð Súðavíkur skv.
1. gr. laga nr. 64, 27. júní 1941, og bar Búnaðarfélagi
Islands að gefa umsögn um málið. Stjórn Búnaðarfélags
Islands fól mér að kynna mér alla málavöxtu og gefa sér
skýrslu um málið. Dagana 15. og 16. júní var ég í Súðavík,
athugaði jarðir þær, sem eru á svæði Verzlunarlóðarinn-
ar, og ræddi við aðila um málið. Lét ég síðan Búnaðar-
félagi Islands í té álitsgjörð mína.
5. Vegamálastjóri hafði óskað eftir álitsgjörð Bún-
aðarfélags Islands um landbrot á ræktuðu og ræktanlegu