Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 80
76
BUNAÐARRIT
eftir, að búið lialdi áfram að starfa sem sauðfjárræktar-
bú samkvæmt búfjárræktarlögum. Ég vil nota tækifærið
og þakka Guðmundi M. Eiríkssyni fyrir samstarfið á
undanförnum árum. Hann er einn hinna ágætu fjár-
manna, sem settu svip sinn á íslenzka bændastétt á fyrri
bluta þessarar aldar. Nú fækkar því miður hinum nötnu
fjárbirðum, sem ekki aðeins láta sér annt um líðan bvers
einstaklings hjarðarinnar dag bvern, beldur ganga
þannig um liiis bey og umhverfi allt, að til fyrirmyndar
er. Vélaöldinni fylgir járnarusl og drasl, sem því miður
lýtir umgengni á mörgum býlum, og manneklan og bið
báa kaupgjald gerir það að verkum, að minna nostur
er lagt í störfin en áður fyrr. Samt er umgengni og bú-
fjárbirðingin enn ágæt og verður alltaf til fyrirmyndar
bjá þeim, sem smekkvísir eru, þótt þeir noti nýtízku
vinnubrögð og tækni við störfin.
Sauðfjárræktarbúin, sem enn starfa, eru á Svanshóli
í Strandasýslu, Frostastöðum í Skagafirði, Stafafelli og
Brekku í Austur-Skaftafellssýslu, Seglbúðum í Vestur-
Skaftafellssýslu og Hrafnkelsstöðum í Arnessýslu.
Afkvæmarannsóknastöðvar
Bæði árin nutu 2 afkvæmarannsóknastöðvar framlags
samkvæmt búfjárræktarlögum, önnur í Mávahlíð í Borg-
arfirði, starfrækt í sambandi við Hestsbúið að ósk Bún-
aðarsambands Borgarf jarðar, sem leigir Hestsbúinu
jörðina Mávahlíð til þessarar starfsemi, hin að Hauka-
gili í Vatnsdal, er starfar að tilhlutan Búnaðarsambands
Húnavatnssýslu.
Hrútasýningar og afkvæmasýningar á sauðfé
Yfirlit um, livar sauðfjársýningar voru haldnar haust-
ið 1961 og bverjir voru aðaldómarar á þeim, er að finna
í 75. árg. Búnaðarritsins, bls. 60—61.
Haustið 1962 voru binar venjulegu brútasýningar
lialdnar í Eyjafjarðar-, Skagafjarðar-, Austur- og Vestur-