Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 102
98
BU.NAÐARKIT
erindi um 'mjaltir og sýndi skuggamyndir til skýringar á
efninu. Jafnframt vann ég að mjaltaliæfnismælingum á
kvígum, sem eru í afkvæmarannsókn í Laugardælum.
Mjaltahæfnismælingar liafa lítið verið framkvæmdar
hérlendis, en verða að teljast eitt mikilvægasta atriðið í
sambandi við afkvæmarannsóknir. Gefa þær upplýsingar
um, hvernig kýrin er í mjöltun og eiginleika hálfsystra-
hópa með tilliti til mjalta. Þessi atriði eru ekki sízt þýð-
ingarmikil, og verður í ríkum mæli tekið tillit lil þessara
eiginleika kýrinnar við áframhaldandi ræktun nautgripa-
stofnsins.
Um mánaðamótin janúar—febrúar, eða 31. janiiar til
2. febrúar, var ég á ferð í Skagafjarðar- og Austur-Húna-
vatnssýslu ásamt Ólafi E. Stefánssyni. Sátum við þrjá
fundi, að ökrum, Hólum og Blönduósi. Umræðuefni
fundanna var nautgriparækt, og ræddi ég um sumar- og
liaustbeit mjólkurkúa og flutti erindi um notkun mjalta-
véla. Seinna á árinu, 14.—16. júní, var ég aftur á ferð í
A.-Húnavatnssýslu og sat þrjá fundi, að Blönduósi, Ás-
brekku og Húnaveri, þar sem ég flutti erindi um mjaltir
og mjaltavélar og sýndi jafnframt skuggamyndir til skýr-
ingar efninu. Dagana 4.—10. apríl fór ég ferð um Borg-
arfjörðinn, kom á 39 bæi og ræddi við bændur um mjalta-
vélar, viðhald og notkun þeirra. 1 þessari ferð flutti ég
fyrirlestur að Hvanneyri og sat tvo fundi, í Brautartungu
og Fannahlíð. Umræðuefni fundanna var mjaltavélar og
vélmjaltir. Dagana 2.—4. desember fór ég ferð norður til
Akureyrar og flutti tvö erindi á bændaklúbbsfundi mánu-
dagskvöldið 3. des. Fjölluðu erindin um mjaltavélar,
mjaltir og hreinlæti, og steinefni og vítamín í fóðri mjólk-
urkúa. Þann 14. desember sat ég aðalfund Nautgriparækt-
arsambands V.-Skaftafells- og Rangárvallasýshi ásamt
Ólafi E. Stefánssy ni. Á fundinum flutti ég erindi um
árangur kynbótastarfsins og framleiðsluaukningu hú-
anna.
Sýningar. Dagana 23.—26. júlí mætti ég á sýningum