Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 99
SKÝRSLUR STARFSMANNA 95
11 gyltur, 1 göltur og 108 grísir á mismunandi aldri, alls
120. Hænsni voru 880 og liross 35.
Bvggt var á árinu 48 m2 steinsteypt mjólkurhús við
fjós ásamt snyrtilierbergi, fatageymslu og gangi, og er
við liúsið sambyggður, steinsteyptur hrúsapallur. Þá var
að mestu lokið að byggja steinsteypt grindafjós yfir 40
geldneyti. Undir því er steinsteyptur áhurðarkjallari um
400 m3 að stærð og rimlar úr steinsteypu. Hafin var
lagning skolpveitu frá öllum húsum staðarins, og er ætl-
að, að hún verði 400 m löng í byrjun. Grasfræi var sáð
í 10.5 lia lands og 3 til 4 lia grófunnir. Vélgrafnir skurð-
ir voru á árinu 2043 m3. Vélakostur var bættur.
Tilraunir. Á Lundi er haldið áfram uppeldisathugun-
um, sem byrjað var á árið áður. Þær 10 kvígur, sem nú
eru í uppeldi, eru allar fæddar í sept. s. 1. og hafa sörnu
aðbúð og áður liefur verið, sjá síðustu starfsskýrslu. Eru
kvígurnar hraustar og virðast |irífast vel.
/ Laugardœlum. var gerð tilraun síðastliðið liaust um
það, hvaða áhrif það hefur á mjólkurgæði að beita kúm
á fóðurkál. Enn fremur var vorið 1962 framkvæmd atliug-
um um vélmjaltir, og sá Jóhannes Eiríksson, ráðunautur,
um liana. Síðan hann réðst til Búnaðarfélags íslands,
hefur tilraunastarfsemi í Laugardælum hehlur (lregizt
saman, þar sem enn hefur ekki fengizt þangað liæfur til-
raunastjóri. Vonandi verður tilraunastarfsemin aukin að
nýju árið 1963, því að rannsóknarefni eru mörg og að-
kallandi.
Holdanautgriparnál. A árinu gengu í gildi ný lög um
innflutning búfjár, og á fjárlögum var 500 þús. kr. fjár-
veiting til að skapa aðstööu til sóttvarna og flytja inn
sæði úr Galloway-nautum. Leitaði ráðuneytið umsagnar
blutaðeigandi aðilja um slíkan innflutning, en ekki varð
úr framkvæmdum, þar eð yfirdýralæknir synjaði um
hann að svo komnu máli.
Stjórn Búnaðarfélags íslands mun hafa leyft nokkrum