Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 94
90
BÚNAÐARRIT
Aukning mjólkurframleiðslunnar varð lilutfallslega
lieldur meiri en liún hafði verið á fyrra ári. Enn er
hlutfallsleg aukning mest í þeim mjólkursamlögum, sem
nýlega Iiafa verið stofnuð, svo sem á Egilsstöðum, Höfn
og Hvannnstanga. Annars staðar er hún liægari og yfirleitt
hlutfallslega minnst þar, sem kúabúin eru orðin stór, svo
sem á Suðurlandi og í Eyjafirði. 1 nágrenni Reykjavíkur
dregst framleiðslan saman, en aukningin á innlagðri
mjólk í Borgarnesi á að mestu rót sína að rekja til meiri
aðsendrar mjólkur úr Dalasýslu. Um 15. jan. tók til starfa
nýtt mjólkurbú á Djúpavogi, og stofnun allmargra er í
undirbúningi á Vesturlandi, sbr. skýrslu mína í Búnaðar-
riti 1962 um nautgripasýningar á því ári. Af innveginni
mjólk voru 45.3% seld sem nýmjólk.
Skýrslur nautgriparœklarfélaga. Skýrsla um starfseini
félaganna 1961 hefur verið afhent til birtingar í Búnaðar-
riti 1962, 75. árg.
Nautgripasýningar. Grein um sýningar 1962 hefur ver-
ið afhent til birtingar í sama árg. Búnaðarritsins.
KynbótastöSvarnar. Starfsemi stöðvanna jókst enn á
árinu og mótaðist á ýmsan hátt. Það var mikil lyftistöng
fyrir þessa starfsemi, að á árinu viðurkenndi landbúnaðar-
ráðuneytið að fengnum meðmælum Búnaðarfélags Islands
4 útibú frá stöðvunum liæf til að njóta stofn- og rekstr-
arstyrks. Þessi litibú eða dreifingarstöðvar eru þrjú frá
kynbótastöðinni í Laugardælum og eitt frá sæðingarstöð-
inni á Hvanneyri, sett á stofn að Syðra-Lágafelli í Mikl-
holtshreppi á vegum Bsb. Snæf.- og Hnappadalssýslu.
Tók það til starfa 1. júní 1962, og veitir því forstöðu
Sigvaldi Jóhannsson. Hinar dreifingarstöðvarnar liafa
starfað lengur, en þær eru: 1) að Hellu, stofnsett 1. sept.
1959, forstöðumaður Stein))ór Runólfsson, búfræðikandi-
dat, 2) að Voðmúlastöðum, stofnsett 1. júní 1960, for-
stöðumaður Bjarni Böðvarsson, búfræðingur, 3) að
Syðra-Langholti, stofnsett 1. júní 1960, forstöðumaður
Sigurgeir Sigmundsson, búfræðingur.