Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 217
SAUÐFJÁR RÆ KTARFÉLÖGI N
213
í sjö sýslum eru meðalafurðir eftir tvílembu meiri
en 30 kg dilkakjöt, en minni en 26 kg í þrem sýslum,
Suður-Múlasýslu, Austur-Skaftafellssýslu og Kjósarsýslu.
Þetta er betri útkoma en árið 1960. Þá voru lægstu með-
alafurðir eftir tvílembu, aðeins 24.9 kg, í Kjósarsýslu og
í aðeins þrem sýsluni gáfu tvílembur meira en 30 kg af
dilkakjöti. í átta sýslum voru meðalafurðir eftir á með
lambi meiri en 22 kg dilkakjöt, mestar í Suður-Þingeyj-
arsýslu 26.1 kg og næst mestar í Norður-Þingeyjarsýslu
25.5 kg. I fjórurn sýslum voru afurðir eftir á með lambi
minni en 20 kg, minnstar í Skagafjarðarsýslu 19.2 kg.
Árið 1960 voru 7 sýslur með minna en 20 kg af kjöti eftir
félagsá, sem skilaði lambi, og 1959 voru 11 sýslur undir
20 kg markinu.
Gæðamat falla
Yfirlitsskýrslan, tafla 1, sýnir, að upplýsingar um gæða-
mat vantar úr 8 félögum, en einnig vantar gæðamat frá
nokkrum einstaklingum í sumum binna félaganna. Alls
var skráð gæðamat á 40128 föllum og flokkuðust þau
þannig, að 73.3% (74.9%) lentu í I. fl., 20.6% (20.1%) í
II. fl. og 6.1% (5.0%) í 111. fl. Tölur í svigum eru frá
liaustinu 1960. Föllin flokkuðust því aðeins lakar en 1960,
en mun belur en 1959. f 13 félögum lenti minna en helrn-
ingur falla í 1. gæðaflokki, en árið áður aðeins í 8 félög-
uin. Það er lakleg útkoma bjá þessum félögum og liik-
ust er hún í Sf. Holtahrepps 21.5%, Sf. Hólasóknar, Saur-
bæjarbreppi, 30.2% og í Sf. Djúpárbrepps, 32.9%. Bænd-
ur, sem fá minna en helming dilka sinna í 1. flokk, þurfa
að gera eitthvað lil þess að bæta úr þessu. Vel getur kom-
ið til greina að rækta grænfóður lianda lömbunum á
haustin, einkum bjá þeim, sem ekki geta kennt slakri vor-
fóðrurí um rýrleika dilkanna. f 7 félögum lenti meira en
20% falla í 111. flokk og er það óviðunandi.