Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 48
44
BÚNAÐARRIT
Hin niikla reynsla, víðsýni og drengskapur Steingríms
til manna og málefna liefur gert j>að að verkum, að gott
hefur verið að lúta stjórn lians og Jiiggja leiðbeiningar,
og fyrir það þakka ég.
Janúar, 1963,
fíjörn Bjarnarson.
Starfsskrá Agnars Gu&nasonar
Ferðalög, fundir og skipting starfsins
I lok janúar mætti ég ásamt Jóhanni Jónassyni, for-
stjóra, á 5 fundum á Suðurlandi. Var rætt um ýmislegt
varðandi kartöflurækt. A fundunum mættu um 460
manns. Um miðjan febrúar mætti ég á bændaklúbbs-
fundi á Akureyri, heldur slælega mætt á þeim fundi. 1
byrjun marz fórum við Jóliannes Eiríksson saman á fund
í Biskupstungum. 1 þessum mánuði unnum við jafnframt
að undirbúningi bændavikunnar í útvarpinu. Síðast í
marz fór ég ásamt Sveini Tryggvasyni, framkvæmdastjóra,
til Stokkbólms á stjórnarfund í NBC. Fyrst í apríl fór-
um við Jóhannes Eiríksson upp að Hvanneyri og flutt-
um þar fyrirlestur. I lok apríl fór ég ásamt Óla Val Hans-
syni og Birni Stefánssyni, ritstjóra, austur í A.-Skafta-
fellssýslu, og hélduni við jtar nokkra fundi, voru jteir
sæmilega sóttir, en ótti við smitun af inflúenzu aftraði
nokkrum frá að mæta, enda skiljanlegt, Jiar sem slíkir
sjúkdómar leggjast allþungt á fólk í sveitum, sent voru
svo til einangraðar fram undir síðustu ár. 1 maímánuði
vann ég ýmiss konar störf. Helztu verkefnin voru: Undir-
búningur að námskeiði fyrir æskufólk í Reykjavík í
sveitastörfum og vinna við sjálft námskeiðið, sem stóð í
5 daga. Upptaka á efni í útvarpsþátt Búnaðarfélagsins
„Jónsmessubátíð bændanna“. 1 byrjun júní unnum við
mag. Ingvi Þorsteinsson bjá Búnaðardeild að því að