Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 196
192
BÚNAÐAKRIT
Mál nr. 36
Tillaga fjárhagsnefndar um skiptingu Búnaðarmúla-
sjúðs áriS 1962.
Þegar Eftir-
Innkoniið greitt stöðvar
Búnaðarsamb. Kjalarnesþings 105.496,47 65.000,00 40.496,47
— Borgarfjarðar 184.184,26 114.000,00 70.184,26
— Snæfellsness- og Hnappad. 57.501,05 10.000,00 47.501,05
— Dalamanna 39.920,05 15.000,00 24.920,05
— Vestfjarð'a 66.681,39 26.000,00 40.681,39
— Strandamanna 28.531,02 0 28.531,02
— Vestur-Húnavatnssýslu ... 60.552,18 44.000,00 16.552,18
— Húnavatnssýslu 85.546,45 28.000,00 57.546,45
— Skagfirðinga 104.518,24 46.000,00 58.518,24
— Eyjafjarðar 240.712,61 124.000,00 116.712,61
— Suður-Þingeyinga 120.001,63 40.000,00 80.001,63
— Norður-Þingeyinga 33.865,75 0 33.865,75
— Austurlands 165.924,23 32.000,00 133.924,23
— Austur-Skaftfellinga 11.077,87 0 11.077,87
— Suðurlands 606.395,00 459.000,00 147.395,00
Óskipt 1.324,30 0 1.324,30
Kr. 1.912.232,40 1.003.000,00 909.232,40
Samþykkt með 21 samhlj. atkv.
Mál. nr. 37
Tillaga til þingsályktunar um stofnlánaskatt. Flutt af
meirihluta allsherjarnefndar.
Með því að Alþingi tók í engu atriði tillit til ályktunar
síðasta Búnaðarþings varðandi lagasetningu um stofnlána-
deild landbúnaðarins, þá lýsir það mótmælum gegn þeim
ákvæðum laganna, þar sem bændur eru sérskattaðir til
sjóðsins um 1% á brúttóframleiðslu sína með óaftur-
kræfu og vaxtalausu fjárframlagi.
Telur þingið fjáröflun þessa valda óviðunandi misrétti
milli þegna þjóðfélagsins, auk þess sem það orkar tví-
mælis að margra dómi, að ákvæði þetta samrýmist stjórn-
arskrá ríkisins.