Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 92
88
BÚNAÐAR RIT
þeim fyrir háskólamenntun í búvísindum, sem leggja vil ja
stund á þan, og livaS gerzt hefur í þessum málum frá
því, að síðasta ráðstefna var haldin. Skýrsla um förina
verðnr send ráðuneytinu, en ég vil nota þetta tækifæri
til að færa rektor háskólans sérstakar þakkir fyrir
ánægjulegt samstarf á ráðstefnunni, og vil ég jafnframt
láta í ljós þá skoðun mína, að það hafi verið mikilvægt
fyrir skynsamlega viðleitni til að leysa þetta vandamál
íslenzku þjóðarinnar, að Háskóli Islands skyldi koma því
við að senda fulltrúa á ráðstefnuna, og vona, að það ásamt
öðru verði til þess, að stefnt verði hátt og í rétta átt.
Önnur störf. Ég átti áfram sæti í Tilraunaráði búfjár-
ræktar og gegndi formannsstörfum í því mestan liluta
ársins í fjarveru formanns, dr. Halldórs Pálssonar. Voru
störf mín þar því venju fremur mikil, enda allmargir
fundir haldnir. Aðrar nefndir, sem ég er fulltrúi Bún-
aðarfélags Islands í, störfuðu ekki á árinu. Hinn 25. marz
var haldinn starfsfræðsludagur í Reykjavík, og leiðbeindi
ég þar eins og að undanförnu um búnaðarfræðslu.
1 árslok lét Steingrímur Steinþórsson af störfum sem
búnaðarmálastjóri, en við tók dr. Halldór Pálsson. Vil ég
þakka hinum fráfarandi húsbónda góð samskipti og bjóða
hinn nýja velkominn. Ég réðst til Búnaðarfélags Islands
á þeim tíma, er Steingrímur Steinþórsson var forsætisráð-
herra, og kynntist honum ekki að kalla, fyrr en hann tók
aftur við starfi búnaðarmálastjóra fyrir röskum sex árum.
Hefur verið gott að starfa undir handleiðshi hans þessi
ár, og ég tel mig hafa veriö heppinn að eiga þess kost að
kynnast honum sem stjórnanda og manneskju. Óska ég
honum og hinni ágætu konu hans alls liins bezta á
ókommim árum. Hinn nýja búnaðarmálastjóra, dr. Hall-
dór Pálsson, lief ég þekkt lengur. Við böfum í röskan
áratug liaft náið samstarf í ýmsum málum. Við vorum
árum saman einu búfjárræktarráðunautar Búnaðarfélags
íslands, sem störfuðu í húsakynnum þess í Reykjavík, og