Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 26
22
BÚNAÐARRIT
vænta, ef veitt er nægilegt fé til þessarar herferðar, en
ekki niá um of skera það við nögl, ef árangur á að nást.
20. Brynhildur Ingjaldsdóttir, skrifstofumær. Hún
hefur unnið á aðalskrifstofu félagsins að öllum venju-
legum skrifstofustörfuin, þar á meðal annast hún hina
daglegu sölu á skrifstofunni.
21. GuSrún Þorsteinsdóttir, skrifstofumær, annast síma-
vörzlu og vélritun.
22. Sigrún Jónsdóltir réðist til félagsins í ársbyrjun
1962 til venjulegra skrifstofustarfa. Hún annast afgreiðslu
Freys og skrifstofustörf í sambandi við útgáfu blaðsins.
23. Hannes Pálsson, stjórnarráðsfulltrúi. Hann hefur
unnið á skrifstofiun félagsins rúndega liálfan daginn.
Hannes vinnur einkum að endurskoðun á jaröræktar-
skýrslum, ásamt ýmsum svipuðum störfum.
Auk þess fasta fólks, sem starfað liefur hjá Búnaðar-
félagi íslands síðastliðið ár, varð stöku sinnum að fá
aukavinnu, þegar sérstök verkefni kölluðu að, eins og
jiegar senda þurfti út frá skrifstofunni mikið af ritum
eða önnur slík aukaverk kölluðu að.
Aðalskrifstofa félagsins
Starfið á aðalskrifstofu félagsins er að sjálfsögðu svip-
að frá ári til árs, og þarf því ekki mörgum orðum um jiað
að fara. Meðan húsakynni eru eins jiröng og enn er liér á
skrifstofum félagsins, verður ekki að neinu ráði breytt
um vinnubrögð, jió að þess væri þörf á margan liátt. En
nú líður óðum að því, að unnt verður að flytja skrifstof-
ur félagsins í rýmra og Iienlugra luisnæði. Vonandi verð-
ur liægt að flytja í hið nýja húsnæði félagsins á árinu
1963. Þegar þar að kemur og flutningar eru um garð
gengnir, jiá hljóta að verða teknar upp breyttar
vinnuaðferðir á ýmsan hátt. Hið nýja hús við Haga-
torg keiiiur til með að kosta mikið, og öll starf-
ræksla Jiar verður miklum mun kostnaðarsamari en verið