Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 136
132
BUNAÐARKIT
1 Austiir-Skaftafellssýslunni dvöldu Skagfirðingar í 3
nætur og 2 daga og fóru um mestan hluta sýslunnar, að
Jökulsá á Breiðamerkursandi. Lengra varð ekki komizt
á hílum. Var til þess tekið, hve vel Búnaðarsamband
Austur-Skaftfellinga hafði skipulagt ferðina innan síns
liéraðs, en það var að miklu leyti verk ráðunauts þess,
Egils Jónssonar. Sunnudag 1. júlí var snúið heim-
leiðis og gist á Fljótsdalsliéraði, en daginn eftir Iialdið
alla leið heim í Skagafjörð, og komið þangað undir sólar-
uppkomu.
Skagfirðingar urðu þannig fyrstir bænda til að fara
kynnisför til Suðausturlands. Gist var á hæjum allar
sjö nætur, en það eykur stórum gildi þessara ferða, kynn-
ing ferðafólksins við heimamenn verður þá miklu meiri.
Virtist mér ánægja þátttakenda vera mjög mikil vfir
þessari ferð, enda var farið um stórkostlega fögur héruð,
og segja má, að Skagfirðingar liafi verið mjög veður-
heppnir. Það er álit mitt, að margt gott liafi leitt af
þessum kynnisferðum bænda á vegum BúnaSarfélags
Islands. Þær hafa verið bæði fróðlegar og skemmtilegar,
en bændur landsins í heild voru æði staðbundin stétt,
áður en farartæki nútímans, bíllinn og flugvélin, komu
til sögunnar. Ég kom heim úr þessari ferð 3. júlí — og
mun þetta liafa verið 29. eða 30. bændaförin, sem ég lief
átt þátt í.
Síðast í júlí fór ég í söfnunarferð fyrir væntanlegt
byggðasafn á Snæfellsnesi og fór um Skógarströndina og
kom einnig í eyjar þær á Hvammsfirði, sem lieyra lienni
til. Eru þær nú flestar komnar í eyði nema Brokey og
Öxney. En í þeim báðum eru merkar minjar um Eirík
rauða, sem bíða rannsóknar fornfræðinga. 1 Stykkishóhni
var ég fjóra daga og flutti muni byggðasafnsins úr ein-
um geymslustað í annan betri, í liinu nýja liúsi sýslu-
bókasafnsins. Þá fór ég h'ka snögga ferð út í Iiið' gamla
höfuðsetur Breiðafjarðareyja, Flatey, er þar nú öðru
vísi en áður fyrr, þegar þar var miðstöð allra eyjanna.