Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 53
SICÝRSLUR STARFSMANNA 49
vanda til þessara dagskráa og lagt þó nokkuð inikla
vinnu í þær.
Þetta er í stuttu máli það lielzta, sem ég lief starfað á
árinu. Mér þykir tilhlýðilegt í lok þessarar starfsskýrslu
minnar að flytja fyrrverandi búnaðarmálastjóra, Stein-
grími Steinþórssyni, mínar beztu þakkir fyrir mjög
ánægjulegt samstarf með óskum um, að liann megi njóta
alls bins bezta um ókomin ár.
Garðyrkjurá'ðunauturinn
Skrifstofustörf o. fl.
Störfin á skrifstofunni voru með líkum liætti og áður.
1 byrjun ársins og fram undir vor vann ég nokkuð að
uppdráttum garða og lauk 28 teikningum. Hefur mér
gengið erfiðlega að standa skil á því, sem ég lief lofað,
vegna tímaskorts. Nokkuð er um það, að óskir um garða-
teikningar berist mjög seint, jafnvel ekki fyrr en komið
er fram undir vor, og er ég þá venjulega svo tímabund-
inn, að mér er ómögulegt að sinna slíku, þótt ég gjarnan
vildi. Beiðnir um teikningar þurfa belzt að vera komn-
ar til mín eigi síðar en um áramót, ef ætlazt er til, að
ég ljúki þeiin af fyrir vorið. Annað er, að ýmsir, sem
óska eftir uppdráttum frá mér, senda oft alltof ófullnægj-
andi upplýsingar um aðstöðu og staðbætti, þannig að ég
lendi oft í vandræðum með verkið. Að öðru leyti bef ég
varið skrifstofutímanum til bréfaskrifta, til að svara bréf-
legum fyrirspurnum og veita ýmsar upplýsingar og að-
stoð, bæði þeim, sem komið liafa bér eða bafa liaft sírna-
samband við mig. Ég lief ennfremur ritað nokkrar grein-
ar fyrir Handbók bænda, Garðyrkjuritið og Húsfreyjuna,
og á bændavikunni flutti ég erindi í Ríkisútvarpið urn
ylræktun.
Að Hlíðartúni við Lágafell var enn lialdið áfram með
UÚNAÐARRIT 4