Búnaðarrit - 01.01.1963, Blaðsíða 166
162
BÚNAÐARRIT
GreinargerS:
Á Búnaðarþingi árið 1961 var samþykkt frumvarp til
laga um sölu jurtalyfja, sem fól í sér ákveðnar reglur um
innflutning, sölu og meðferð þeirra. Þar sem frumvarpið
liefur enn ekki verið tekið til meðferðar á Alþingi, legg-
ur Jarðræktarnefnd álierzlu á, að svo verði gert, þar
sem það felur í sér grandvallarskipan þessara mála.
Þá telur nefndin, að gefnu tilefni, aðkallandi, að til-
raunir verði gerðar, sem leiði í ljós, liverjar verkanir
jurtalyf þessi liafi við sem breytilegastar aðstæður um
jarðveg og veðurfar.
Mál nr. 8 og 18
Erindi fulltrúafundar bœnda í Austur-Skaftafellssýslu
og Búna&arfélags Kirkjubœjarhrepps um tjún af völdum
grágæsa.
Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt
var með 23 samhlj. atkv.:
Búnaðarþing felur stjórn Búnaðarfélags Islands að
beita sér fyrir því, að fram fari þegar á þessu ári vísinda-
leg rannsókn á lifnaðarháttum grágæsa og álfta, og sér-
staklega á því, hversu miklum spjöllum þessar fuglateg-
undir valda á ræktunar- og beitilöndum, og fundnar
verði leiðir til að koma í veg fyrir tjón af völdum þess-
ara fugla.
Búnaðarþing felur stjórn Búnaðarfélags Islands að
sækja um styrk úr Vísindasjóði til þessara rannsókna.
GreinargerS:
Um tjón af völdum grágæsa hefur verið mikið rætt á
undanförnum árum, og með liverju ári verða alltaf fleiri
og fleiri bændur, sem kvarta undan tjóni af völdnm
þeirra, bæði á ökrum, nýræktartúnum, görðum og enn-
fremur á afréttarlöndum.
Nú eru grágæsir friðaðar frá 1. apríl—20. ágúst, og
mun sú friðun vera liður í alþjóðasamþykkt um þau