Búnaðarrit - 01.01.1964, Blaðsíða 23
SKÝRSLA BÚNAÐARMÁLASTJÓRA
17
menn voru: Mr. R. Featherstone, bóndi, Clipsham, Oak-
ham, Rutlandshire, dvahli liér frá 15.—22. janúar, Mr. E.
Hart, hóndi, Fair Hill Farm, Hawnby, Yorksliire, frá 26.
apríl—5. maí og Mr. W. J. S. Mercliant, ráðunautur, Ding-
wall, Rosshire, Skotlandi, frá 9. 14. maí. Ferðazt var
með hvern þessara manna um Suðurland og Borgarfjörð
og ]>eim sýnd fjárliús af ýmsum gerðum og fé og fjár-
liirðing við ólíkar aðstœður, bæði hjá bændum og á ríkis-
búum eins og á Hesti og í Gunnarsholti.
Þann 23. júní komu þeir Poul E. Moherg, ríkisráðu-
nautur Noregs í sauðfjárrækt og Gustav Nærland, fylkis-
dýralæknir á Rogalandi. Þeir höfðu sett. sig i sam-
band við Búnaðarfélag fslands, Búnaðardeildina og
Tilraunastöðina á Keldum og óskað eflir, að þessar stofn-
anir skipulegðu liálfs mánaðar dvöl þeirra hér á landi á
þann veg, að þeim gæfist kostur á að kynnast sem bezt
sauðfjárræktinni og lieilbrigðismálum búfjár og jafnframt
heimsækja nokkra sögustaði. Að sjálfsögðu urðu þessar
stofnanir við óskum þessara ágætu gesta. Fyrstu dagana
dvöldu þeir í Reykjavík, kynntu sér skipulag húnaðarmála
liér á landi og starfsemi allra helztu laudhúnaðarstofnana
í borginni. Þá var ferðazt með þá víða um landið, og
þeim sýndar ýmsar búnaðarstofnanir, svo sem Hestsbúið,
bændaskólarnir, búfjárræktarstöðin að Lundi við Akur-
eyri, tilraunabúið að Laugardælum, Gunnarsholtsbúið o.
II. stofnanir. Þá komu þeir á marga sveitabæi og ýmsa
sögustaði í Borgarfirði, á Norðurlandi og Suðurlandi. Ýms
búnaðarsambönd og héraðsráðunautar aðstoðuðu við mót-
töku þessara gesta og veillu þeim leiðsögn. Kann Búnað-
aðarfélag fslands þeim beztu þakkir fyrir þá aðstoð. Norð-
menn þessir létu hið hezta af dvöl sinni liér á landi og
móttökum öllurn og hafa heðið Búnaðarfélag íslands að
færa öllum, sem þeir heimsóttu og nutu hjá gestrisni og
leiðsögn, alúðar Jiakkir.
Fjárbóndinn A. Mellhcrg frá Skog í Ángermanland í
Svíþjóð dvaldi hér á landi vikutíma í ágúst til að kynna
mjNAUAimiT
2