Búnaðarrit - 01.01.1975, Blaðsíða 101
SKTRSLUR STARFSMANNA
73
til a3 ætla að takast megi að framleiða afbrigði, sem
okkur lienti, þegar tímar líða, en aðeins eru fá ár, síðan
farið var að sinna þessu að marki.
Ég fór á ráðstefnu í Noregi 1.—5. okt., þar sem ræddar
voru ymsar nýjar leiðir í baráttu við meindýr og jurta-
sjúkdóma. Það, sem hér er um að ræða, er fyrst og fremst
ýmsar lífrænar leiðir, svo sem ný afbrigði og stofnar,
sem befir tekizt að rækta í ónæmi gegn ýmsum kvillum,
notkun skordýra, sem lifa á meindýrum, og lialda fjölda
þeirra innan æskilegra marka, þannig að þau vinna gróðri
ekki vemlegt tjón, og svo notkun efna, sem hafa lítil eða
mjög takmörkuð eituráhrif, en sérverkandi áhrif á vissa
liópa skordýra, t. d. frjósemi þeirra. Yar ráðstefna þessi,
sem haldin var á Staur, skammt frá Hamar, afar vel
heppnuð og þeim, sem að stóðu, til mikils sóma, en eig-
andi Staur er Statens Kornforening, eitt stærsta verzlunar-
fyrirtæki Noregs. í þessari sömu ferð heimsótti ég einnig
ýmsar gróðrarstöðvar, tilraunastöðvar og skyldar stofn-
anir í Danmörku, Svíþjóð og Noregi og hlaut hina beztu
fyrirgreiðslu.
Þá sótti ég ráðstefnu, sem lialdin var á vegum norska
landbúnaðarráðuneytisins fyrir ráðunauta, skólastjóra og
yfirkennara í garðyrkju í Noregi. Var ráðstefna þessi
haldin á Sem í Ask. Þarna voru teknir fyrir allir helztu
þættir gróðurhúsagarðyrkju, svo og staða þeirra í Noregi,
eftir hina gífurlegu Iiækkun olíuverðs að undanförnu.
Margt er líkt á sviði garðyrkju í Noregi og hér og óvíða
hægt að finna líkari ytri aðstæður en sums staðar þar í
landi. Var þetta því lærdómsríkur tími okkur Islending-
um, sem þarna vorn, en það vorum við Óli Valur Hans-
son frá Búnaðarfélagi Islands og Grétar Unnsteinsson,
skólastjóri Garðyrkjuskólans á Reykjum.
Ymsa fyrirgreiðslu og leiðsögn veitti ég erlendum
mönnum, sem vinna að garðyrkjn og landbúnaði og voru
liér á ferð á liðnu ári, og sat ýmsa fundi með þeim, þar