Búnaðarrit - 01.01.1975, Blaðsíða 380
352
BÚNAÐARKIT
og jafnaldrar jieirra í sýslunni í lieild, og hlaut enginn
þeirra I. vcrðlaun. Af 6 hrútum 2ja vetra hlutu 2 I.
verðlaun, þeir Spakur Magnúsar Sigurðssonar, með lang-
an haus, klettþungur og Iioldmikill og ineð ágæt læri, og
Blettur Jóhannesar Haraldssonar, ættáður frá Marteini
Jónssyni, góð kind með ágæt bak- og lærahold, en full-
krappur.
Shefilsstaðahreppur. Sýningarnar, sem voru 2, voru illa
sóttar og sýndir alls 24 lirútar. Fullorðnu hrútarnir voru
2.1 kg þyngri og þeir veturgömlu 2,9 kg þyngri en jafn-
aldrar þeirra í liéraðinu. Af 16 lirútum 2ja vetra og
eldri hlutu 6 I. verðlaun eða 37,5%, en af veturgömlum
hlaut 1 fyrstu verðlaun, Sómi Ásgríms á Mallandi. Hann
er jafnvaxinn og ágætlega lioldgóður. Af 2ja vetra hrút-
um var Hegri Margrétar á Skefilsstöðum, ættaður frá Ási,
beztur. Hann er harðholda, en fullgrófur, með afbragðs
bringu og breitt bak. Af eldri hrútum voru beztir Sómi
Björns í Ketu, ættaður frá Hvalnesi, er harðholda með
góða bringu og ágæt bak-, mala- og læraliold, og Lundur
Margrétar á Skefilsstöðum, ættaður frá Ibisbóli, er með
framúrskarandi hvelfdan brjóstkassa og ávalar lierðar,
ágæt bakhold, en fulllina lærvöðva.
Austur-Húnavatnssýsla
Þar voru sýndir 458 hrútar eða 39 fleiri en 1970, 303
fullorðnir og 155 veturgamlir. Þeir fullorðnu voru 2,6 kg
þyngri en jafnaldrar þeirra 1970 og þeir veturgömlu 6,4
kg þyngri.
Fyrstu verðlaun hlutu 228 hrútar, 148 fullorðnir, sem
vógu 100,8 kg og 80 veturgamlir, er vógu 84,6 kg.
Flokkun hrútanna varð nokkru betri en 1970, 49,8%
hlutu fyrstu verðlaun nú, en 46,8% 1970. Fullorönu lirút-
arnir flokkuðust þó hlutfallslega verr, en veturgömlu hrút-
arnir mun betur. Þrátt fyrir fleiri sýnda lirúta nú fóru
færri hrútar í þriðju og engin verðlaun.