Búnaðarrit - 01.01.1975, Blaðsíða 364
336
BUNAÐARRIT
Saurbœjarhreppur. Sýningin var sæmilega sótt. Full-
orðnu hrútamir voru 1,0 kg undir meðalþunga í hérað-
inu, en þeir veturgömlu voru 5,5 kg undir meðalþunga.
Af 42 hrútum 2ja vetra og eldri lilutu 20 I. verðlaun eða
47,6%, en af 18 veturgömlum lilutu 4 I. verðlaun eða
22,2%. Af veturgömlum hriitum voru heztir: Goði Hreins
á Hríslióli, Jiann er með grannan liaus, Iioldgóður á baki,
læri ekki nægilega hörð og mjófættur, og Dreki Félags-
húsins í Stóradal, ættaður frá Hríshóli, er fremur stór
og háfættur, en lioldmikill. Af 2ja vetra lirútum, sem
voru fremur rýrir og léttari nú en þegar þeir voru vetur-
gamlir, voru beztir bræðurnir Lómur 118 og Sómi 117,
synir Snæs 843 frá Félagsbúinu á Möðruvöllum. Lómur
er holdmikill, sérstaklega á mölum, en Sómi er til muna
háfættari, en lioldgóður. Tveir hrútar tveggja vetra frá
Draflastöðum komu órúnir og voru rýrir og ljótir. Af
eldri hrútunum voru beztir bræðurnir Prúður 78 Hreins
á Hríslióli og Dixon 154 frá Félagsbúinu í Stóradal.
Þeir eru synir Nixons 127, sem Sauðfjárræktarfélagið
Freyr á, en hann er sonur Þokka 803. Prúður 78 og Dixon
154 eru miklar lioldakindur, mcð afbragðs bringubygg-
ingu, en læri tæplega nógu liörð. Sómi Hallgríms í öxna-
felli er jafnvaxinn, holdgóður og harðgerður.
Hrafnagilshreppur. Sýningin var allvel sótt og voru
sýndir 40 hrútar, sem er 10 lirútum fleira en 1970. Full-
orðnu hrútarnir voru 2,4 kg léttari en jafnaldrar þeirra
annars staðar í héraðinu, en veturgömlu hrútarnir voru
með sama meðal|ninga og jafnaldrar þeirra annars stað-
ar. Af 26 lirútum 2ja vetra og eldri hlutu 7 I. verðlaun
eða 26,9%, en af 14 lirútum veturgömlum hlutu 4 I. verð-
laun eða 28,6%. Af veturgömlu hrútunum voru beztir:
Óðinn sonur Blæs 856 frá Félagshúinu á Finnastöðum,
jafnvaxinn og snotur kind, undan Skeifu 4, en hún hlaut
nú T. verðlaun fyrir afkvæmi, og Hörgur frá Félagsbúinu
á Torfum, ættaður frá Staðarhakka, er myndarlegur, en
ekki fríð kind. Af tveggja vetra hrútum voru beztir: