Búnaðarrit - 01.01.1975, Blaðsíða 114
86
BÚNAÐARRIT
Dætur Sævar voru 9 talsins. Yoru þær að meðaltali
838 daga gamlar við 1. burð og komust í 14,9 kg hæsta
dagsnyt. Þær mjólkuðu á 130 dögum 1601 kg með 4,42%
feita mjólk, sem svarar til 7076 fe og vom í 9,2 kg dags-
nyt eftir fyrstu 130 dagana frá burði. 1 mjaltamælingu,
sem gerð var á kvígunum, mjólkuðust dætur Sævar á
3,68 mín., þar af mjólkuðu þær 63% á fyrstu 2 mínútun-
um. Leiðrétt fyrir 6 kg málnyt var mjaltatími 3,60 mín.
Brjóstmál þeirra við burð var 175 cm að meðaltali. „Sæv-
ardætur eru fremur bolmiklar kýr með ágætt júgur og
spena, mjaltir í meðallagi“, segir í skýrslu Guðmundar
Steindórssonar.
Dætur Bakka voru aðeins 7 að tölu. Þær voru að meðal-
tali 800 daga gamlar, er þær báru, og komust í 18,0 kg
liæsta dagsnyt. Á 130 dögum mjólkuðu þær 2035 kg með
4,61% mjólkurfitu, þ. e. 9381 fe, og voru að meðaltali
í 13,7 kg dagsnyt í lok þess tímabils. Fer ekki milli
mála, að þessi hálfsystraliópur er afkastamikill, bæði
með tilliti til mjólkurmagns og mjólkurfitu. Þær mjólk-
uðust á 3,09 mín., þar af 80% á fyrstu 2 mínútunum.
Leiðrétt fyrir 6 kg málnyt var mjaltatími 2,55 mín.
Brjóstmál við burð var 171 cm að meðaltali. Um þennan
bóp segir Guðmundur: „Dætur Bakka eru freniur grann-
byggðar kýr með ójafna yfirlínu. Jixgur ágæt, spenar
góðir og sérstaklega góðar í mjöltun.“
Dætur Mjaklurs, sem luku 130 daga mjólkurskeiði í
rannsókninni, voru 11 talsins. Báru þær að meðaltali
808 daga gamlar og komust í 14,6 kg liæsta dagsnyt. Þær
mjólkuðu á tímabilinu 1488 kg með 4,32% mjólkurfitu,
þ. e. 6428 fe, og voru að meðaltali í 7,3 kg dagsnyt, er
því lauk. Yið mjallamælingu tók 3,14 mín. að mjólka
kvígur í þessum hópi. þar af mjólkuöust 77% af mál-
nytinni á 2 mín. Leiðrétt fyrir 6 kg málnyt var mjalta-
tími 3,47 mín. að meðaltali. Brjóstmál kvígnanna var
173,5 cnx við burð. Um Mjaldursdætur segir Guðmundur
Steindórsson, að þæ" séu „mjög misjafnar á flestan liátt.