Búnaðarrit - 01.01.1975, Blaðsíða 290
262
BÚNAÐAIUUT
fættir. Af eldri hrútum voru taldir beztir: Vísir, Félags-
húinu í Árbæ, ættaður frá Möðruvöllum, sonur Dreka 811,
er lioldmikill á baki og mölum, en slakur í lærum, með
víðan brjóstkassa, Bjartur Friðbjörns á Sunnulivoli,
ættáður frá Árbæ, sonur Bjarts 53, er mikil holdakind,
klettþungur, með góð læri, fremur lágfættur, Kollur
Friðriks á Finnastöðum er sterkur lirútur, með mjög
vel lagaðan brjóstkassa og góð læri, Búi á Bárðartjörn
er grófgerð kind og Gráni í Fagrabæ er geysilega liöfð-
inglegur hrútur og minnti mig mest á karlljón, því að
brjóstið er svo mikið og reisnin, en liann er mjög liá-
fættur.
SvalbarSsstrandarhreppur. Sýningin var sæmilega sótt,
alls sýndir 37 hrútar. Miðað við jafnaldra á sambands-
svæðinu voru fullorðnu hrútarnir hálfu kg þyngri, en
veturgömlu lirútarnir 2,5 kg léttari. Af 16 brútum full-
orðnum blutu 7 I. verðlaun eða 43,8%, en af 21 vetur-
gömlurn hlaut enginn I. verðlaun, enda flestir boldlitlir
og liáfættir. Af 2ja vetra og eldri hrútum voru taldir
beztir: Onassis Inga Þórs, Neðri-Dálksstöðum, ættaður
frá Sólbergi, afbragðs kind, jafnvaxin, með ágæt bak- og
malahold og allgóð læri, en er heldur mjófættur, Dreki
Helga á Brautarlióli, sonur Dropa 810, er stór og grófur,
boldmikill, en vantar í læri, ullin mjög gróf, Bjartur
Ara í Sólbergi er líkur Onassis, en ekki eins boldgóður.
Öngulsstafiahreppur. Sýningin var ágætlega sótt, alls
voru sýndir 85 hrútar. Fullorðnu lirútarnir voru 1,5 kg
þyngri en jafnaldrar þeirra annars staðar í liéraðinu, en
veturgömlu lirútarnir voru 1,3 kg yfir meðalþunganum. Af
48 lirútum 2ja vetra og eldri blutu 22 I. verðlaun eða
45,8%, en af 37 hrútum veturgömlum lilutu 6 I. verðlaun
eða 16,2%. Af veturgömlum lirútum voru beztir: Hnokki
Kristjáns í Sigtúnum, ættaður frá Syðri-Bægisá, liann er
jafnvaxinn, fremur lágfættur og boldgóður, Klaufi Þór-
lialls á Öngulsstöðum, ættaður frá Klauf, er með sterkt
bak og góð hold á mölum, en tæpari í lærum, enda liá-