Búnaðarrit - 01.01.1975, Blaðsíða 407
AFKVÆMASÝNINGAR Á SAUÐFÉ 379
framan til á mölum, en opinn upp í krika og ber niður
á legginn. Afkvæmin eru hvít, kollótt, mörg með livítar
illhærur í ull, hörkuleg og þróttmikil, með góða fram-
hyggingu og miklar útlögur, yfirleitt lioldgóð á haki og
mölum, en misjafnari á lærahold. Smári er Iioldmikill,
en bítur ekki rétt, mikið mergliærður í ull og gengur á
lágklaufum á afturfótum. Annað lirútlambið er mjög
líklegt hrútsefni, flestar gimbramar efnileg ærefni. Rum-
ur hlaut 104,9 stig fyrir lamhavænleika haustið 1972 og
106,8 haustiö 1973. Það haust lilaut liann 113,8 fyrir af-
urðasemi 9 tveggja vetra dætra. Rumur er álitlegur ær-
faðir, en hefur ekki enn reynzt vel sem hrútafaðir.
Rumur 69-306 hlaut III. vcrSlaun fyrir afkvœmi.
C. Blakkur 69-316 Guðjóns Jónssonar á Gestsstöðum er
frá Smáhömrum, f. Gyllir 64-201, er hlaut I. verðlaun
fyrir afkvæmi 1968, sjá 82. árg., bls. 538, m. Ljósbrá 358,
sem hlaut nii öðru sinni I. verðlaun fyrir afkvæmi.
Blakkur er hvítur, kollóttur, gulur á liaus og fótum, með
svera, sterka fætur og góða fótstöðu, jafnvaxinn, liold-
þéttur og sterkbyggður, en ekki alveg nógu fylltur upp
í klofiö. Afkvæmin eru hvít, kollótt, mörg gul á liaus og
fótum og hærð í ull, með sterka fætur og góða fótstöðu,
þéttvaxin og samstæð, en ekki nógu fyllt upp í klofið.
Hrútlömbin eru nothæf lirútsefni og gimbrarnar líkleg
ærefni. Kolur er kröftugur og kjötmikill lirútur, en of
liáfættur og því ekki mikill í lærum, Grettir er grófur
um lierðar og ekki nógu fylltur á bak og malir. Blakkur
er í slöku búsmeðaltali með vænleilca sláturlamba, en
hlaut haustið 1973 105,9 í einkunn fyrir 6 dætur, þær eru
frjósamar og góðar afurðaær.
Blakkur 69-316 hlaut II. verðlaun fyrir afkvœmi.
D. Fífill 69-317 Guðjóns á Gestsstöðum er frá Smáhömr-
um, f. Sómi 65-214, m. 329, er hlaut I. verðlaun fyrir af-
kvæmi á þessu liausti. Fífill er hvítur, kollóttur, fölgulur
á liaus og fótum, með sterka fætur og góða fótstöðu,