Búnaðarrit - 01.01.1975, Page 241
BÚNAÐARÞINC
213
1 áðurnefndri greinargerð kemur einnig fram, að til-
greindar séu 30 símstöðvar með samtals 500 notendum,
sem aðeins séu opnar 2 klst. á dag, kl. 9—10 og 16—17.
Um það bil 10 stöðvar afgreiði 4 klst. á dag, en veraleg-
ur hluti sveitanna njóti þjónustustöðva, sem opnar eru
6 klst. á dag, þ. e. kl. 9—12 og 16—19.
Síðan liefur orðið sú breyting, að nú eru 37 stöðvar,
sem afgreiða 4 klst. á dag, þ. e. kl. 9—11 og 15—17,
49 stöðvar, sem afgr. 6 klst. á d., þ. e. kl. 9—12 og 15-—-18
11 stöðvar, sem afgr. 8 klst. á d., þ. e. kl. 9-—13 og 15—19
15 stöðvar, sem afgr. 10 klst. á d., þ. e. kl. 9—19
25 stöðvar, sem afgr. 11 klst. á d., þ. e. kl. 9—20
18 stöðvar, sem afgr. 12 klst. á d., þ. e. kl. 9—21
8 stöðvar, sem afgr. 24 klst. á dag.
1 framkvæmdaáætlun Landssímans fyrir árið 1975 er
gert ráð fyrir uppselningu sjálfvirkra símstöðva á eftir-
greindum stöðum: Reykjaskóla, Laugabakka, Víðihlíð,
Bólstaðarhlíð, Varmalilíð, Breiðumýri, Staðarlióli og
Þverá.
Þessa áætlun þarf hins vegar að endurskoða vegna
síðustu gengisfellingar og niðurskurðar á opinberum fram.
kvæmdum, ef til kemur, en gildandi fjárlög gera ráð
fyrir, að Landssíminn verji 750 milljónum króna til
fjárfestingar á árinu 1975.
Þar sem enn skortir mikið á, áð símaþjónustan sé við-
unandi í sveitum landsins, er full ástæða til að leggja
sérstaka áherzlu á það, að stjórn Búnaðarfélags Islands
fylgi þessu máli fast eftir.
Að öðra leyti vísast til greinargerðar Búnaðarþings
1973 með máli nr. 20.
Mál nr. 11
Kjörbréf þingfulltrúa.
ICjörbréfanefnd lagði til, að öll kjörbréf aðalfulltrúa og
varamanna þeirra yrðu samþykkt af Búnaðarþingi, og var
það gert með 24 samhljóða atkvæðum.