Búnaðarrit - 01.01.1975, Side 473
NAUTGRIPARÆKTARFÉLÖGIN 445
þeim fækkað um 10 frá árinu áður. 1 þessum flokki er
afurðahæsta húið af öllum í töflunni, bú Sigurðar Ólafs-
sonar, Syðra-Holti í Svarfaðardal, með 5060 kg meðal-
ársnyt 17,3 árskúa. Loks eru bú með 10—15 árskýr. Eru
þau nú 61 og hefur fækkað um 16 frá 1972. Tvö efstu
búin þar eru 2. og 3. afurðaliæsta bi'iið í töflunni allri.
Hið fyrra er hú Ingólfs Björnssonar, Vatnsdalsgerði í
Vopnafirði, með 4988 kg meðalnyt 10,2 árskú^i og hið
síðara félagsbúið í Baldursheimi í Skútustaðalireppi með
4935 kg meðalnyt 10,8 árskúa.
Af búunum, sem birt eru í töflu III, eru 70 á starfs-
svæði S. N. E., 30 í Árnessýslu, 27 í Skagafirði, 21 á starfs-
svæði Bsb. S.-Þing., 15 í Nsb. Rang.- og V.-Skaft., 7 í
Borgarfirði, 6 í A.-Skaftafellssýslu og 17 annars staðar
á landinu. Atbyglisverð er sii fjölgun á búum í þessum
afurðaflokki, sem orðið hefur í Skagafirði árin 1972 og
1973. Ekki eru í töflu III talin smærri bú en þau, sem
á voru 10,0 árskýr, en alls voru 82 minni bú með 4000
kg meðalnyt eftir árskú, þ. e. 54 með milli 5 og 10 og 28
með færri en 5 árskýr.
1 13.—14. tld. Freys 1974 er grein eflir Jón Viðar Jón-
mundsson og Magnús B. Jónsson, og heitir bún Or vél-
skýrsluhaldi nautgriparœktarfélaganna ári& 1973. Þar er
ýtarlega greint frá niðurstöðum úrvinnslu á nokkrum
þáttum úr skýrslum nautgriparæktarfélaganna, sem ekki
liafa verið tök á að framkvæma reglulega ogtæmandi, áður
en vélskýrslubald bófst, svo sem dreifingu burðartíma,
kyn fæddra kálfa, faðerni þeirra og ásetning. Auk þess
eru þar birtar skrár yfir þá gripi, sem hæstar kynbóta-
einkunnir liafa lilotið, en nú er farið að reikna kynbóta-
einkunnir til stuðnings við val kynbótagripa. Kynbótaein-
kunnum þessum er þó enn ábótavant, og þarfnast þær
endurskoðunar. Þar sem þær eru eingöngu miðaðar við
afurðir, verða þær að sjálfsögðu aldrei einlilítar við val
kynbótagripa.