Búnaðarrit - 01.01.1975, Blaðsíða 490
462
BÚNAÐARRIT
hæsta kýrin, miðað við mjólkurfitu, var Skotta 123,
Haraldar Kristinssonar, Öngulsstöðum I í Eyjafirði, en
afurðir hennar voru 379 kg mjólkurfitu. Var ársnyt
hennar 6960 kg og mjólkurfita 5,44%. Miðað við kg
mjólkurfitu (áður fitueiningar) eru þetta næst hæstu
ársafurðir kýr liér á landi, en metið, 430 kg mjólkurfitu,
er frá fyrra ári, og á það Kæti 46, Ljótsstöðum í Vopna-
firði, en liún er nú þriðja hæsta kýrin með 365 kg.
Næstliæsta kýrin nú er einnig frá Öngulsstöðum I. Er það
Blesa 115 með 374 kg mjólkurfitu. Var ársnyt hennar
7559 kg, sem jafnframt var liin liæsta á árinu. Blesa
er samfeðra Skottu 123, báðar dætur Sokka N146-59018
frá Skarði við Akureyri. Þessar systur voru með liærri
afurðir á árinu en áður hefur gerzt í sögu nautgripa-
ræktarinnar, þegar frá eru taldar afurðir Kæti 46
árið 1973.
í töflu III eru talin þau bú, þar sem meðalnyt árskúa
var yfir 4000 kg og tala Jieirra ekki lægri en 10,0. Eru
þau 185 að þessu sinni. Hafa þau þrisvar orðið fleiri,
þ. e. 221 árið 1971, 218 árið 1972 og 193 árið 1973. I
töflunni er búunum skipt í 4 flokka eftir fjölda árskúa,
en raðað innan hvers flokks eftir nythæð. Að þessu sinni
nær ekkert hú á skránni 5000 kg meðalnyt.
Fyrst eru talin bú með 25,0 árskýr og yfir. Eru þau
37, en voru 40 árið á undan. Efst þeirra er bú Haralds
Jespersens, Miðhvammi í Aðaldal, með 4895 kg meðal-
nyt 37,4 árskúa, og er það 3. liæsta búið í töflunni allri.
Þetta bú hefur verið með afurðamestu stórhúum að
undanförnu. Það var efst í þessum flokki árið 1973 og
3. efsta 1972. Stærsta húið af þeim 185, sem birt eru í
töflunni, er félagsbúið á Möðruvöllum fram í Eyjafirði
með 51,5 árskýr og 4674 kg meðalnyt.
I næsta stærðarflokki eru bú með 20—25 árskýr, alls
41, en voru 45 árið áður. Efst þeirra er bú Péturs Jóns-
sonar, Geirslilíð í Flókadal, með 4753 kg meðalnyt 23,2
árskúa. Hefur það áður staðið framarlega.