Búnaðarrit - 01.01.1975, Blaðsíða 371
HRÚTASÝNINGAR 343
ÓlafsfjörSur. Sýning þar var sæmilega sótt og alls sýnd-
ir 25 hrútar. Miðað við jafnaldra í liéraðinu voru full-
orðnu hrútarnir 4,8 kg þyngri, en þeir veturgömlu 2,4
kg þyngri. Af 11 lirútum 2ja vetra og eldri lilutu 7 I.
verðlaun eða 63,6%, en af 14 lirútum veturgömlum hlaut
1 fyrstu verðlaun, en þeir voru yfirleitt holdlitlir og há-
fættir. Móri Pálma á Karlsstöðum, ættaður frá Kvíabekk,
var eini veturgamli hrúturinn, sem fékk I. verðlaun. Hann
er hollangur og þungur, en lieldur lausliolda. Af eldri
hrútum var Spakur Marinós á Þverá, sonarsonur Dropa
810, talinn beztur. Hann er jafnvaxinn og holdgóður með
allgóðan lærvöðva. Kollur Sigurjóns á Vermundarstöð-
um er samfeðra Spak. Hann er lioldakind, en í gróf-
ara lagi. Kolur Andrésar á Kvíabekk er langur og bak-
breiður, en ekki nógu holdfylltur.
Sigluf jöröur. Sýningin var illa sótt, aðeins sýndir 13
hrútar, 3 fullorðnir, sem voru 6,7 kg þyngri en jafnaldrar
þeirra annars staðar í héraðinu, og 10 veturgamlir, sem
voru 0,5 kg þyngri. Af veturgömlu hrútunum voru beztir:
Spakur Guðmundar Magnússonar, ættaður frá Garði I,
jafnvaxinn með góð læri og gleiða fótstöðu, Depill Krist-
jáns Sigurðssonar, ættaður frá Deplum, er ágæt holdakind,
en full krappur um brjóst, og Roði Þórarins Hjálmarsson-
ar, sem er 3ja vetra, er mikið farin að rýrna, liafði
fengið I. verðlaun áður og fékk að lialda þeim, en ég
sagði Þórarni, að þetta væri svikakind.
Skag'afjarðarsýsla
Sýningar í Skagafirði fóru fram dagana 27. september til
4. október, en þeim lauk þá með héraðssýningu, sem
lialdin var á Hamri og Hofsstaðaseli. Um hana liefur
áður verið skrifað, sjá Búnaðarritið 87. árg., 1974, hls. 384.
Alls voru sýndir 552 hrútar eða 20 færri en 1970, 364
fullorðnir og 187 veturgamlir. Fullorðnu hrútarnir vógu