Búnaðarrit - 01.01.1975, Síða 472
444
BÚNAÐARRIT
mjólkurfitu í kg, var Kæti 46, Erlings Pálssonar, Ljóts-
stöðum í Vopnafirði, en afurðir liennar námu 42962 fe
(430 kg mjólkurfitu). Ársnyt liennar var 7420 kg og
fitumagn mjólkurinnar 5,79%. Þetta eru langhæstu árs-
afurðir í sögu nautgriparæktarfélaganna. Fyrra metið var
372 kg mjólkurfitu, sem Skeiða 19, Koti í Svarfaðardal,
setti árið 1971. Miðað við mjólkurmagn varð hæst Rósa 1,
Steins Snorrasonar, Syðri-Bægisá í öxnadal, sem mjólkaði
8010 kg með fremur háa mjólkurfitu, 4,23%. Þetta er í
annað sinn, sem kýr mjólkar yfir 8000 kg á einu ári
(almanaksári). Hin var Grána 9, Reykjarlióli í Fljótum,
sem mjólkaði 8190 kg árið 1971.
I töflu III eru talin þau bú, þar sem meðalnyt árskúa
var yfir 4000 kg og tala þeirra ekki lægri en 10,0. Eru
þau 193 að þessu sinni, og liafa aðeins tvisvar áður orðið
fleiri, þ. e. 221 árið 1971 og 218 árið 1972. Að venju er
búunum skipt innbyrðis í 4 flokka eftir fjölda árskúa,
en raðað innan hvers stærðarflokks eftir nytliæð.
I fyrsta flokknum eru hú með 25,0 árskýr og yfir.
Eru þau 40, en voru 41 árið áður. Má því segja, að fjöldi
stærstu búanna í þessum háa afurðaflokki liafi ekki
breytzt. Hæst méðalnyt í þessum flokki var hjá Harald
Jespersen, Miðhvammi í Aðaldal, 4934 kg, en árskýr þar
voru 33,1. Er það jafnframl þriðja liæsta búið af þeim
193, sem í töflunni eru. Langstærsta hiiið í þessum liópi
er aftur á móti hjá Hauki Halldórssyni, Sveinbjarnar-
gerði á Svalbarðsströnd, sem hafði 62,4 árskýr og meðal-
nyt 4274 kg. Næst í röðinni eru félagsbúið á Möðruvöll-
um fram í Eyjafirði með 48,4 árskýr og 4367 kg meðal-
nyt og bú Sveins Skúlasonar í Bræðratungu í Biskups-
tungum með 41,9 árskú og 4023 kg mcðalnyt.
1 næsta stærðarflokki eru bú með 20—25 árskýr, alls
45 nij, en voru 43 árið áður. Er þar ekki heldur um
sveiflu að ræða. Efst þeirra var félagsbúið á Hamri í
Rípurhreppi með 4862 kg meðalnyt 22,8 árskúa.
Bú með 15—20 árskýr eru í töflu III 47 alls, og hefur